Fjöldi kynferðisbrota í fyrra heldur yfir meðaltali Eiður Þór Árnason skrifar 15. janúar 2026 19:53 Nokkuð fleiri umferðarslys komu inn á borð lögreglunnar á Austurlandi árið 2025 en árið á undan. Vísir/jóhann K. Alls voru ellefu kynferðisbrot skráð hjá lögreglunni á Austurlandi á síðasta ári. Fjöldinn er heldur hærri en meðaltal frá 2015 þar sem skráð brot hafa að jafnaði verið átta talsins á ári hverju. Á sama tíma voru málin færri nú en árið 2024 þegar tólf kynferðisbrot voru skráð og 2022 þegar þau voru fjórtán talsins.
Skráðum heimilisofbeldismálum hefur fækkað frá árinu 2020 en fimmtán slík mál voru skráð hjá lögregluembættinu í fyrra. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum lögreglunnar á Austurlandi fyrir árið 2025. Umferðarslys voru skráð 42 en þau hafa verið 35 að jafnaði frá árinu 2019. Umtalsverð aukning er frá 2024 þegar skráð umferðarslys voru 32 og er um að ræða hátt í þriðjungsaukningu milli ára. Skráðum umferðarlagabrotum án hraðamyndavéla fjölgaði frá árinu á undan, úr 1.055 í 1.427, og eru nokkuð fleiri en að meðaltali frá 2015. Það á einnig við um skráðan hraðakstur (telur ekki hraðamyndavélar) og ölvunarakstur sem er yfir meðaltali. Skráðum heimilisofbeldismálum fækkar milli ára. Lögreglan á austurlandi Heildarfjöldi hegningarlagabrota nær meðaltali Skráðum brotum vegna fíkniefnaaksturs fækkar frá 2024 en þau eru nærri meðaltali frá árinu 2015. Skráð brot vegna sviptingaraksturs hafa ekki verið færri frá árinu 2015 og voru tuttugu talsins árið 2025, samkvæmt bráðabirgðatölunum. Fjöldi skráðra fíkniefnabrota er nærri meðaltali frá árinu 2015. Skráð hegningarlagabrot eru svipuð að fjölda hjá lögreglunni á Austurlandi og síðustu ár. Það á einnig við um helstu brotaflokka á borð við eignaspjöll, auðgunarbrot og ofbeldisbrot sem öll eru nærri meðalfjölda brota frá árinu 2015. Bráðabirgðatölur lögreglunnar á Austurlandi. Brotalínan sýnir meðaltal tímabilsins. Lögreglan á Austurlandi Bráðabirgðatölur lögreglunnar á Austurlandi. Brotalínan sýnir meðaltal tímabilsins. Lögreglan á Austurlandi
Lögreglumál Kynferðisofbeldi Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira