Frír leikskóli í sex klukkutíma á dag í Hveragerði Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 9. janúar 2026 20:05 250 börn frá 12 mánaða aldri eru í leikskólum Hveragerðisbæjar og þar er engin biðlisti inn á leikskólana, öll börn komast inn. Magnús Hlynur Hreiðarsson Frítt verður fyrir börn í sex tíma á dag í leikskólum Hveragerðisbæjar frá 1. febrúar næstkomandi en frítt hefur verið fyrstu fimm klukkustundirnar frá 1. janúar síðastliðnum. Þetta var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn í gær, 8. janúar.
Í bókun meirihlutans kemur fram að frá 1. janúar nema þannig vistunargjöld 13.200 krónur fyrir 8 tíma og þann 1. febrúar einungis 8.800 krónur. „Mánaðarleg vistunargjöld á leikskóla fyrir 8 tíma vistun munu þannig á árinu 2026 hafa lækkað úr 29.270 krónur í upphafi kjörtímabils niður í 8.800 krónur, eða sem nemur um 70% á kjörtímabilinu,” segir m.a. í bókuninni. Í Hveragerði eru tveir leikskólar, Undraland og Óskaland en í leikskólum bæjarins eru um 250 börn frá 12 mánaða aldri. Engin börn eru á biðlista eftir að komast í leikskóla. „Í upphafi kjörtímabilsins settum við okkur það markmið að bjóða upp á 6 klukkustundir gjaldfrjálst. Þessi, sýn sem við teiknuðum upp í upphafi tímabilsins er nú að raungerast og er það mikið gleðiefni. Við leggjum mikla áherslu á málefni fjölskyldna og öflugir leikskólar sem geta þjónustað ört stækkandi íbúahóp á faglegan hátt er gott dæmi um það sem við viljum standa fyrir,” segir Sandra Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar og bætir við. „Við erum hæstánægð með þessa ákvörðun og vitum að hún, ásamt mörgum öðrum aðgerðum og ákvörðunum á kjörtímabilinu, færa gott bæjarfélag í allra fremstu röð. Þess má geta líka að „Hvergerðismódelið “ gerir ekki ráð fyrir að aðrar og fleiri leikskólastundir, eða önnur þjónusta, hækki sem þessu nemur eins og virðist vera raunin í mörgum sveitarfélögum sem eru að fara svipaða leið”. Sandra Sigurðardóttir, sem er forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar.Aðsend 12 milljóna viðbótarkostnaður Vegna leikskólamálanna var gerður viðauki á fjárhagsáætlun ársins 2026, sem afgreiddur var á bæjarstjórnarfundinum í gær en hann gerir ráð fyrir 12 milljóna viðbótarkostnaði. „Hveragerði hefur tekið stakkaskiptum á þessu kjörtímabili, sex tíma gjaldfrjáls leikskóli er hluti af þeim umbótum og færir bæinn í fremstu röð hvað byggðagæði varðar á landinu,” segir Sandra að lokum.
Hveragerði Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira