Forsætisnefnd tekur við kvörtunum um ríkisendurskoðanda Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. janúar 2026 11:04 Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis og fer fyrir forsætisnefnd þingsins. Vísir/Vilhelm Forsætisnefnd Alþingis mun taka fyrir tilkynningar um EKKO-mál af hálfu ríkisendurskoðanda. Sérstakt verklag hefur verið útbúið fyrir meðferð tilkynninganna. Forseti Alþingis segir verklagið í samræmi við opinbert verklag. Ekki liggur fyrir hversu margar kvartanir hafa borist.
Í lok október í fyrra var greint frá starfsánægjukönnun hjá Ríkisendurskoðun og segir þar að ítrekað hafi komið upp svokölluð EKKO-mál sem varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi. Algjöru ófremdarástandi var lýst. Guðmundur Björgvin tók við embætti ríkisendurskoðanda í júní árið 2022 og herma heimildir Vísis að um hálfu ári eftir að hann tók við hafi farið að bera á ósæmilegri hegðun. Hann á að hafa sagt að fjörutíu prósent starfsmanna embættisins væru drasl og að hann þyldi hvorki vinnustaðinn né starfsfólkið. Lét starfsfólk sérstaklega vita Málið endaði á borði forsætisnefndar Alþingis sem hefur tekið málið fyrir samkvæmt bréfi sem fréttastofa hefur undir höndum, dagsett 24. nóvember 2025. „Starfsaðstæður hjá Ríkisendurskoðun og ábendingar starfsfólks stofnunarinnar um starfsumhverfið hafa verið endurtekið til umfjöllunar á fundum forsætisnefndar Alþingis,“ segir í bréfinu sem undirritað af Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis. Það sé afstaða nefndarinnar að óviðunandi sé að í ljós komi „slíkir misbrestir sem hafa gert áhrif á traust til stofnana þingsins og trúverðugleika Alþingis“. Í bréfinu staðfestir hún við formann starfsmannafélags Ríkisendurskoðanda að nefndin ætli að taka fyrir starfsaðstæður Ríkisendurskoðunar og muni sjálf taka við ábendingum og kvörtunum um hegðun ríkisendurskoðanda. Hún biður formanninn um að koma upplýsingunum á framfæri við starfsfólkið. Í samtali við fréttastofu segir Þórunn að bréfið hafi verið sent í kjölfar niðurstöðu forsætisnefndar eftir að málið var tekið fyrir. „Niðurstaða okkar var að samkvæmt EKKO-ferlum og samkvæmt þeim lögum og reglum sem gilda í landinu þá væri þessu best fyrirkomið svona. Það er að segja að kvartanir frá starfsfólki sem varða stjórnanda á vinnustað þurfi að fara eitthvert annað,“ segir Þórunn. Í október 2025 tók Guðmundur Björgvin sjálfur við öllum mannauðsmálum í kjölfar þess að þrír sviðsstjórar, þar á meðal mannauðsstjórinn, fóru í leyfi vegna ástandsins. Jóhannes Jónsson var einnig meðal sviðsstjóra sem fóru í leyfi en hann hyggst ekki snúa aftur. Þórunn segist ekki getað tjáð sig um innri starfsemi Ríkisendurskoðunar aðspurð hvort mannauðsstjóri kæmi til með að taka aftur við kvörtunum og ábendingum starfsfólks þegar hann snýr aftur. Hafi haft takmarkaða möguleika Fréttastofa hefur einnig undir höndum sérstakt verklag sem forsætisnefnd samþykkti þann 15. desember 2025 sem ber titilinn „Meðferð tilkynninga um einelti og áreitni af hálfu ríkisendurskoðanda“. „Starfsmaður Ríkisendurskoðunar getur leitað til skrifstofustjóra Alþingis með tilkynningu um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi út af hegðun eða framkomu ríkisendurskoðanda,“ segir í verklaginu. Sérstaklega er tekið fram að starfsfólkið hafi fram til þessa haft takmarkaða möguleika á að koma tilkynningu á framfæri um hegðun og framkomu ríkisendurskoðanda. Líkt og áður kom fram tók Guðmundur sjálfur við ábendingum og kvörtunum eftir brotthvarf mannauðsstjórans. Fjöldi kvartana liggur ekki fyrir Þórunn segir að verklag vegna ábendinga sem ætlað sé einum tilteknum forstöðumanni sé í samræmi við verklag annars staðar hjá hinu opinbera. Til að mynda sé til slíkt verklag fyrir stjórnarráðið sjálft. Ekki liggur fyrir hvort að einhverjar kvartanir hafi borist nefndinni en þær fara í gegnum skrifstofustjóra Alþingis og eru síðan teknar fyrir á fundum forsætisnefndar. Ekki hafi verið fundað síðan fyrir jól. „Við erum að fara að funda núna í vikunni og það kemur í ljós.“
Alþingi Ríkisendurskoðun Stjórnsýsla Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Sjá meira