Brynjar vill aðra setningu og Arndís Anna reynir aftur Árni Sæberg skrifar 5. janúar 2026 15:22 Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Brynjar Níelsson vilja embætti héraðsdómara. Vísir/Vilhelm Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru á meðal umsækjenda um embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þau voru það líka síðast þegar embættið var auglýst laust til umsóknar. Þá hlaut Brynjar tæplega eins árs setningu í embætti.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að hinn 5. desember 2025 hafi dómsmálaráðuneytið auglýst í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Skipun og setning í boði Annars vegar hafi verið um að ræða skipun í embætti dómara sem muni hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs dómara stendur. Umsóknarfrestur hafi runnið út þann 22. desember síðastliðinn. Umsækjendur um bæði embættin séu: Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir lögmaður, Marta María Friðriksdóttir aðstoðarmaður dómara við Landsrétt, Sindri M. Stephensen dósent og settur héraðsdómari, Sverrir Sigurjónsson lögmaður. Umsækjendur eingöngu um skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur séu: Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður. Umsækjendur eingöngu um setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur séu: Brynjar Níelsson lögfræðingur. Settur frá 14. febrúar til loka síðasta árs Þau Arndís Anna, Sindri og Brynjar sóttu einnig um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur þegar það var auglýst í nóvember árið 2024. Brynjar var metinn hæfastur og settur dómari þann 14. febrúar síðastliðinn til og með 31. desember síðastliðnum. Líkt og áður sagði eru Arndís og Brynjar fyrrverandi þingmenn. Arndís sat á þingi fyrir Pírata frá árinu 2021 og fram að alþingiskosningum árið 2024, en hún sóttist ekki eftir endurkjöri. Brynjar var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 2013 til 2021, og var varaþingmaður frá kosningum 2021. Hann var í þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í síðustu kosningum, en náði ekki inn á þing.
Dómstólar Sjálfstæðisflokkurinn Píratar Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Nei eða já? Af eða á? Sneri drenginn niður, sló hann og tók mynd af honum eftir misheppnað dyraat Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Sjá meira