Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. desember 2025 15:45 Selenskí kynnti tillögurnar á blaðamannafundi í dag. EPA Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti greindi frá helstu atriðum í tuttugu punkta drögum að friðarsamkomulagi sem Úkraína og Bandaríkin hafa til skoðunar. Forsetinn trúir því að drögin gætu orðið grunnurinn að friðarsamkomulagi þeirra við Rússa.
Forsvarsmenn Úkraínu og Bandaríkjanna hafa átt í samningaviðræðum undanfarnar vikur eftir að þeir síðarnefndu lögðu til 28 punkta drög að friðarsamkomulagi. Drögin voru gagnrýnd fyrir að vera heldur hliðholl Rússum en samkvæmt Reuters sagði Selenskí að ríkin tvö væru komin nær samkomulagi. Fyrr í dag birti Selenskí drög að sinni eigin tuttugu punkta friðaráætlun. Í henni kemur fram að Úkraína haldi enn fullveldi sínu og kveðið er á um að komið verði á fót eftirlitskerfi til að vakta landamæri Rússlands og Úkraínu. Úkraínski herinn fái að halda mannafla sínum auk þess að fá öryggistryggingar frá Bandaríkjunum, Atlantshafsbandalaginu og evrópskum löndum en gefur upp að ganga þrátt fyrir það ekki í Atlantshafsbandalagið. Úkraína hyggst enn ganga í Evrópusambandið en fær sem fyrst aðgang að innri markaði sambandsins. Þá verður undirritaður fríverslunarsamningur við Bandaríkin en þá hyggjast Bandaríkjamenn einnig gera álíka samning við Rússa. Þá lofar Úkraína að halda frjálsar forsetakosningar um leið og samningurinn hefur verið undirritaður. Bæði löndin eiga einnig að setja á laggirnar menntakerfi með það að markmiði að minnka kynþáttafordóma og kenna landsmönnum að umgangast annars konar menningarsamfélög. Sleppa á öllum föngum sem eru í haldi beggja aðila og einnig öllum gíslum og börnum. Um leið og allir hafa undirritað samninginn tekur vopnahlé gildi. Deila um kjarnorkuver og landsvæði Punktarnir tveir sem enn eru óleystir varða annars vegar yfirráð á ákveðnu svæði og Zaporizhzia-kjarnorkuverið. Í áætlun Bandaríkjanna segir að öll þrjú löndin komi til með að reka kjarnorkuverið saman, en Bandaríkjamenn verði þar forsprakkar. Úkraínumenn vilja frekar eiga helming á móti Bandaríkjamönnum þar sem bæði ríkin fá að ráðstafa helmingi af rafmagnsframleiðslunni. Að sögn Selenskí var punkturinn sem varðar yfirráð yfir ákveðnu landsvæði hvað flóknastur. Rússar vilja að Úkraínumenn gefi upp svæði í Donetsk-héraðinu en Úkraína vill frysta víglínurnar líkt og þær eru núna. Bandaríkjamenn hafa þá lagt til að svæðið í Donetsk-héraðinu, sem Úkraína hefur nú yfirráð yfir, verði hlutlaust svæði. Hins vegar er skýrt í punktunum að þegar allir komast að samkomulagi um þessi tilteknu svæði má ekki breyta þeim með afli.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira