Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Árni Sæberg skrifar 15. desember 2025 16:23 Nefndina skipuðu Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, formaður nefndarinnar, Dóra Hjálmarsdóttir rafmagnsverkfræðingur og Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur. Starfsmaður nefndarinnar var Sonja Hjördís Berndsen, lögmaður hjá embætti ríkislögmanns. Á myndina vantar Finn Þór. Vísir/Lýður Valberg Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík árið 1995 er hvorki að finna álit né vangaveltur nefndarinnar um mögulega ábyrgð einstaklinga á atburðum 16. janúar 1995, þegar fjórtán fórust. Í skýrslunni segir hins vegar að auðvelt sé að vera vitur eftir á.
Skýrsla rannsóknarnefndarinnar var birt í dag en nefndin var skipuð fyrir rétt rúmu ári síðan. Nefndinni var ætlað að draga saman og útbúa til birtingar upplýsingar um málsatvik með það að markmiðið að varpa ljósi á ákvarðanir og verklag stjórnvalda í tengslum við flóðið. Þar átti að gera grein fyrir: Hvernig staðið var að ákvörðunum um snjóflóðavarnir, hvernig skipulagi byggðar var háttað með tilliti til snjóflóðahættu, gerð hættumats og hvernig staðið var að upplýsingagjöf um snjóflóðahættu til íbúa Súðavíkur, Fyrirkomulagi og framkvæmd almannavarnaaðgerða í aðdraganda snjóflóðsins, í kjölfar þess og þar til hættuástandi var aflétt, Eftirfylgni stjórnvalda í kjölfar snjóflóðsins. Sama á við um skýrslu um snjóflóð og skýrslu um efnahagshrun Í fyrsta kafla skýrslunnar segir að eins og fyrri rannsóknarnefnd Alþingis hafi réttilega séð tilefni til að taka fram í inngangi skýrslu sinnar vegna viðkomandi rannsóknar hennar sé stundum sagt að auðvelt sé að vera vitur eftir á og að aðstaðan sé vissulega önnur þegar horft sé til baka og tóm hafi gefist til að draga saman og vega og meta gögn og upplýsingar í ljósi þess sem síðar hafi gerst. Þetta eigi ekki síst við þegar um sé að ræða afdrifaríkar ákvarðanir sem teknar hafi verið við erfiðar aðstæður í kapphlaupi við tímann. Einnig hafi þar verið minnt á að öll séum við í þeirri stöðu að geta séð betur eftir á hvernig rétt hefði verið að bregðast við þegar afleiðingar slíkra ákvarðana séu fram komnar. „Enda þótt sú rannsókn sem þessi skýrsla varðar hverfist um annars konar málefni, og vitaskuld fyrst og fremst annars konar áhrif og afleiðingar, heldur en til umfjöllunar hafa verið hjá fyrri rannsóknarnefndum Alþingis má telja framangreindar ábendingar um þekkt sannindi einnig eiga við hér. Við lestur og íhugun upplýsinga sem koma fram í skýrslunni er rétt að hafa þau í huga og gefa þeim eðlilegan gaum.“ Tíminn rýri möguleika á að komast til botns í málinu Líkt og fyrri rannsóknarnefnd Alþingis hafi einnig sé tilefni til að taka fram megi jafnframt telja eiga við nú að vegna rannsóknar eins og þeirrar sem skýrslan varðar skipti miklu að upplýsingar sem birtar séu, og ályktanir sem kunni að mega draga af þeim eða samhengi þeirra, séu virtar í því ljósi að sanngjarnt og eðlilegt tillit sé tekið til þess hverjar aðstæður, reynsla og þekking voru á viðkomandi tíma, hvað þeir einstaklingar sem hlut áttu í atburðum þekktu til sömu atriða og hvort og þá hvað megi ætla um aðstöðu þeirra í viðkomandi atburðarás til að bregðast við eða þá bregðast öðruvísi við en gert var. Finnur Þór Vilhjálmsson kynnti skýrsluna.Vísir/Lýður Valberg „Það er einnig svo að áratugir eru liðnir frá þeim atvikum sem rannsóknin varðar. Hafa verður í huga að tími sem líður frá atvikum kann almennt á ýmsan hátt að rýra raunhæfa möguleika til að varpa fullnægjandi ljósi á málsatvik með skýrslutökum af einstaklingum, hvað þá þegar jafnlangur tími er liðinn og hér um ræðir. Þetta á bæði við í almennum skilningi m.t.t. minnis fólks og möguleika á að rifja áreiðanlega upp atvik langt aftur í tímann en einnig vegna þess að sumir eru ekki lengur til frásagnar.“ Líkt og gengur og gerist með tímans rás eigi hér einnig við að einstaklingar úr hópi þeirra sem hlut áttu að ýmsum atvikum eða atburðarás hér, og raunar nokkrir þeirra, hafi fallið frá á þeim áratugum sem síðan hafa liðið. Í þeirra hópi sé meðal annars fólk sem atvik og rannsóknarefni skýrslunnar snertu náið og voru í forgrunni atburða í ýmsu samhengi og yfir lengri tímabil. Ekki sé lengur möguleiki á því að afla frásagna eða nánari frásagna þeirra eða bera undir þá gögn eða frásagnir annarra og sú staðreynd hafi óhjákvæmilega haft sín áhrif á rannsókn nefndarinnar. Velta ekki upp mögulegri ábyrgð einstaklinga Loks skuli áréttað að hlutverk og umboð rannsóknarnefndarinnar sé afmarkað á þann veg, í samræmi við meginhlutverk rannsóknarnefnda almennt séð, að henni sé falið að rannsaka, draga saman og útbúa til birtingar upplýsingar um málsatvik. Nefndinni sé um leið ekki falið að draga sérstaklega fram eða setja fram álit sitt, hvað þá vangaveltur, varðandi mögulega ábyrgð einstaklinga, eins eða fleiri í sameiningu eftir atvikum, í tengslum við atvik og samhengi atburða sem rannsóknin varðar. Skýrslan er í tveimur bindum.Vísir/Sigurjón Í því sambandi megi einnig nefna til áréttingar að í umfjöllun í skýrslu eins og þessari, þar sem við sögu komi fjöldi einstaklinga á ýmsum tímabilum og í ýmsu samhengi atvika, séu hins vegar yfirleitt hvorki efni né skilyrði til annars en að vísa til helstu einstaklinga sem atvikin varða undir nafni hverju sinni. Í því felist að sjálfsögðu engin afstaða eða gildisdómar af hálfu nefndarinnar, hvorki beint né óbeint, um þátt viðkomandi einstaklings eða einstaklinga hverju sinni heldur ráðiist það einungis af megintilgangi rannsóknarinnar um að draga saman og varpa ljósi á málsatvik sem varla yrði gert á annan hátt að þessu leyti án hættu á að nauðsynlegt samhengi og skýrleiki kynni um leið að skerðast. „Við rannsókn sína og framsetningu efnis í þessari skýrslu hefur nefndin haft ofangreind sjónarmið í huga og leitast við að taka eðlilegt og sanngjarnt tillit til þeirra þar sem við á. Lesendur skýrslunnar eru góðfúslega hvött til að gæta að hinu sama.“
Snjóflóðin í Súðavík 1995 Súðavíkurhreppur Alþingi Almannavarnir Snjóflóð á Íslandi Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“