Maðurinn handtekinn aftur í tengslum við mannslátið Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. desember 2025 17:26 Maðurinn fannst látinn sunnudaginn 30. nóvember. Vísir/Vilhelm Maðurinn sem handtekinn var fyrir fjórum dögum í tengslum við mannslát í Kópavogi hefur verið handtekinn öðru sinni. Honum var sleppt úr haldi í gær eftir nokkurra daga gæsluvarðhald.
Um ræðir karlmann um þrítugt sem var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 17. desember, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá embættinu. Maðurinn hafði líkt og fyrr segir þegar verið látinn laus og það bara í gær. „Framvinda í rannsókn málsins leiddi hins vegar til þess að maðurinn var handtekinn öðru sinni og í framhaldinu var aftur krafist gæsluvarðhalds yfir honum, sem héraðsdómur féllst á líkt og að framan greinir,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan segir sér ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Uppfært 18:26: E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði segir að gögn hafi fundist í dag sem urðu til þess að ákveðið var að handtaka manninn öðru sinni. Lögregla var með viðveru á vettvangi í dag. Aðspurð kveðst Agnes ekki geta tjáð sig um hvort hugsanlegt morðvopn hafi fundist á vettvangi. Áverkar séu á hinum látna en ekki vitað með hvaða hætti þeir eru tilkomnir.
Lögreglumál Kópavogur Dularfullt mannslát við Skjólbraut í Kópavogi Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira