Everton engin fyrirstaða fyrir Newcastle Siggeir Ævarsson skrifar 29. nóvember 2025 19:34 Malick Thiaw fagnar öðru af tveimur mörkum sínum í kvöld. Vísir/Getty Newcastle gerði góða ferð til Liverpool-borgar í kvöld þegar liðið lagði Everton nokkuð þægilega 1-4.
Það virtist ekki skipta Newcastle neinu máli þó svo að Everton menn væru ellefu á vellinum allan leikinn. Gestirnir höfðu einfaldlega algjöra yfirburði í leiknum og má setja mörg spurningamerki bæði við varnarleik og markvörslu Everton. Newcastle fékk sannkallaða draumabyrjun þegar varnarmaðurinn Malick Thiaw skoraði með skalla eftir hornspyrnu, en hann skoraði tvö mörk í dag, bæði með skalla. Annað mark Newcastle var af skrautlegri gerðinni þar sem Lewis Miley klobbaði Henderson í markinu. Það var þó sennilega ekki viljandi en Pickford leit illa út í markinu og sást glöggt á svipbrigðum hans í kjölfarið að hann átti að gera betur. Nick Woltemade kom Newcastle svo í 0-3 fyrir hálfleik þar sem enginn varnarmaður Everton virtist nenna að elta hann inn á teiginn og hann þakkaði fyrir sig með því að vippa boltanum yfir Pickford. Newcastle gerði endanlega út um leikinn strax á 58. mínútu þegar Thiaw skoraði sitt annað mark og staðan orðin 0-4. Heimamenn vöknuðu aðeins til lífsins í kjölfarið og Thierno Barry kom boltanum í netið, gullfallegt mark en dæmt af þar sem hann fékk boltann í höndina í aðdragandanum. Kiernan Dewsbury-Hall skoraði eina mark Everton skömmu seinna en það kom einfaldlega alltof seint og 1-4 verðskuldaður sigur Newcastle staðreynd.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira