Real hafi misst áhugann á slökum Konaté Valur Páll Eiríksson skrifar 28. nóvember 2025 15:48 Konaté hefur hreint ekki verið góður undanfarið. EPA Áhugi Real Madrid á Ibrahima Konaté, varnarmanni Liverpool, er ekki lengur til staðar ef marka má breska fjölmiðla. Frakkinn hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu
Konaté á aðeins örfáa mánuði eftir af samningi sínum við Liverpool og hefur Bítlaborgarfélagið unnið að því síðustu misseri að framlengja við hann samning án árangurs. Real Madrid er talið hafa spilað þar inn í og horft til þess að fá Frakkann frítt, líkt og Trent Alexander-Arnold frítt frá Liverpool í sumar. Konaté er sagður gera háar launakröfur en verðgildi hans hefur lækkað síðustu vikur vegna slakrar frammistöðu. Framgangur hans hafi í raun verið svo slappur að Real Madrid hafi alfarið misst áhuga á að fá Frakkann í sínar raðir. Arne Slot er undir mikilli pressu sem knattspyrnustjóri Liverpool eftir níu töp í síðustu tólf leikjum liðsins. Hann hefur staðið þétt við bakið á Konaté og hélt honum í byrjunarliði liðsins í 4-1 tapi fyrir PSV Eindhoven í vikunni eftir 3-0 tap fyrir Nottingham Forest síðustu helgi. Sú ákvörðun var gagnrýnd í aðdraganda Evrópuleiksins en ekki síður eftir hann, þar sem Konaté gaf PSV eitt marka liðsins, og var í kjölfarið skipt af velli. Óvíst er hvort hann spili með Liverpool gegn West Ham um helgina þar sem starf Slot gæti verið undir. Liverpool sækir West Ham United heim á sunnudag klukkan 14:05. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Spænski boltinn Fótbolti Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira