Stofnaði Örninn fyrir tíu ára ömmustelpu í sorg Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 20. nóvember 2025 12:52 Stofnandi Arnarins minningar- og styrktarsjóðs segir að sorgarferli barna geti litið öðruvisi út en foreldra. Vísir/Getty Börn eiga auðveldara með að stökkva inn og út úr sorg en hin fullorðnu og syrgja stundum með öðrum hætti. Þetta segir stofnandi Arnarins minningar- og styrktarsjóðs en í dag er alþjóðlegur dagur barna í sorg.
Börn eiga auðveldara með að stökkva inn og út úr sorg en hin fullorðnu og syrgja stundum með öðrum hætti. Þetta segir stofnandi Arnarins minningar- og styrktarsjóðs en í dag er alþjóðlegur dagur barna í sorg. Örninn er helgaður börnum og unglingum í sorgarúrvinnslu eftir ástvinamissi. Heiðrún Jensdóttir, stofnandi Arnarins, mun í dag á degi barna í sorg halda erindi í Vídalínskirkju. „Ég er bara mjög þakklát kona á þessum degi. Ég er þakklát fyrir það að við séum komin þetta langt með sorgarúrvinnslu fyrir börn og unglinga.“ Sjálf missti Heiðrún son sinn fyrir ellefu árum síðan en það var út frá þeirri sorgarúrvinnslu sem hugmyndin að Erninum kviknaði. „Það var mjög auðvelt fyrir mig að vinna úr minni sorg. Ég gat farið í jafningjahópa eins og Nýja dögun sem nú er Sorgarmiðstöðin í dag og fleiri hópa en ég hafði áhyggjur af barnabarninu mínu, sonardóttur minni, sem var tíu ára þegar pabbi hennar dó og hugsaði með mér hvort það væri ekki einhver hópur fyrir hana sem hún gæti farið í.“ En hún fann ekkert slíkt á litla Íslandi en eftir að hafa víkkað út leitina þá fann hún erlendis Camp Erin sem eru sumarbúðir fyrir börn sem höfðu misst náinn ástvin til að vinna með sorg sína. „Þetta var allt gert í gegnum leik og list og samtalshópum og ég var mjög hrifin af þessu verkefni og langaði til að hún fengi að upplifa eitthvað svona.“ Hún tók málin í sínar eigin hendur og fékk séra Jónu Hrönn Bolladóttur í lið með sér og síðan þá hefur fjöldi barna notið þess að fara í slíkar sumarbúðir. Heiðrún segir að sorgarúrvinnsla hjá börnum geti litið öðruvísi út en hjá hinum fullorðnu. „Börn eiga auðveldara með að stökkva inn og út úr sorginni og sorgin hjá börnum kemur á þroskastigum. Hún kannski kemur núna og svo hvíla þau sig og svo kemur sorgin aftur á næsta þroskastigi til dæmis ef barn missir foreldri sitt og svo fermist það og þá kemur sorgin og söknuðurinn upp,“ útskýrir Heiðrún. Hún segir að besta bjargráðið í erfiðum aðstæðum eins og sorg sé samvera fjölskyldunnar. „Að vera saman og halda minningunni á lofti, tala um þann sem látinn er, tala um og rifja upp minningar. Gráta saman og hlæja saman, það er allt í lagi, að gráta og hlæja.“
Sorg Börn og uppeldi Tengdar fréttir Segir börn í sorg vera falinn hóp sem þurfi að sinna Alþjóðlegur dagur barna í sorg fer fram í dag. Örninn, minningar- og styrktarsjóður, stendur fyrir vitundarvakningu í tilefni dagsins um þarfir syrgjandi barna. Prestur og verkefnastjóri Arnarins segir fólk oft ráðalaust þegar það verður fyrir missi og að börn í sorg séu að einhverju leyti falinn hópur sem þarfnast aðstoðar. 18. nóvember 2021 12:00 "Samfélagið þarf að standa með börnum sem missa foreldri“ Ráðstefnan "Hvað verður um mig“ – Málþing um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris, verður haldin á morgun í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar. 28. apríl 2019 20:54 Um hundrað börn á ári missa foreldri en aðeins hluti þeirra fær aðstoð Karolína Helga Símonardóttir er fjögurra barna móðir og ekkja, en eiginmaður hennar var bráðkvaddur fyrir nokkrum árum. Hún segir að vankantar á heilbrigðiskerfinu hér á landi valdi því að aðeins hluti þeirra barna sem missa foreldri fá þá aðstoð sem þau þurfa. 6. október 2020 08:02 Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Erlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Fleiri fréttir Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Pallborðið: Síðasta einvígið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Sjá meira
Segir börn í sorg vera falinn hóp sem þurfi að sinna Alþjóðlegur dagur barna í sorg fer fram í dag. Örninn, minningar- og styrktarsjóður, stendur fyrir vitundarvakningu í tilefni dagsins um þarfir syrgjandi barna. Prestur og verkefnastjóri Arnarins segir fólk oft ráðalaust þegar það verður fyrir missi og að börn í sorg séu að einhverju leyti falinn hópur sem þarfnast aðstoðar. 18. nóvember 2021 12:00
"Samfélagið þarf að standa með börnum sem missa foreldri“ Ráðstefnan "Hvað verður um mig“ – Málþing um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris, verður haldin á morgun í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar. 28. apríl 2019 20:54
Um hundrað börn á ári missa foreldri en aðeins hluti þeirra fær aðstoð Karolína Helga Símonardóttir er fjögurra barna móðir og ekkja, en eiginmaður hennar var bráðkvaddur fyrir nokkrum árum. Hún segir að vankantar á heilbrigðiskerfinu hér á landi valdi því að aðeins hluti þeirra barna sem missa foreldri fá þá aðstoð sem þau þurfa. 6. október 2020 08:02