„Mjög pirruð út í hvort annað eftir frumsýninguna“ Stefán Árni Pálsson skrifar 13. nóvember 2025 14:02 Kolfinna og Sturla eru par og vinna mjög náið saman einnig í leikhúsinu. Að vera eða ekki vera er spurning sem hefur vissulega staðist tímans tönn enda hluti eins rómaðasta harmleiks allra tíma.
Hamlet eða leikrit leikritanna er nú til sýnis á fjölum Borgarleikhússins í enn eitt skiptið. Þessi nýjasta útgáfa hefur nú þegar vakið nokkra athygli fyrir ögrandi og nýstárleg umfjöllunarefni. Í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi ræddi Tómas Arnar við leikstjóra verksins, Kolfinnu Nikulásdóttur. En hvernig er dagur í lífi leikstjórans viku eftir frumsýningu? Anda sig í gegnum þetta „Það er alveg erfitt að fara á fætur sko eftir svona mikla törn og það hellist yfir mann vonleysi, depurð og einmanaleiki. Maður þarf bara að anda í gegnum þetta og þakka fyrir það líka, þetta er bara sætt.“ Kolfinna segir að um ákveðið fæðingarþunglyndi sé að ræða enda undirbúningur og vinna að verkinu búin að standa yfir í marga mánuði. „Og svo bara er ekkert, leikararnir leita til þín á frumsýningarvikur og þú veist svörin við öllu. Svo hættir síminn að hringja og þú verður bara að engu,“ segir Kolfinna og hlær. En áður en við köfum dýpra í leikhúsið skulum við fara yfir sögu þessa pönkara, aðgerðarsinna og Reykjavíkurdóttur. Ævi Kolfinnu hefst í París þar sem hún bjó til sjö ára aldurs ásamt foreldrum sínum. Kolfinna á ættir að rekja til Frakklands og bjó hún þar til sjö ára aldurs. „Að hafa þennan bakgrunn er bara ómetanlegt. Ég kunni frönskuna, pabbi er hálfur Frakki. Afi er franskur og ég á fjölskyldu í Frakklandi. Þau geta alveg talað ensku en þau gera það ekki. Svo er amma frá Púertó Ríkó svo þetta er alheimsblanda,“ segir Kolfinna. Þegar heim til Íslands var komið gekk hún í Austurbæjarskóla. Þar voru unnin ýmis bernskubrek og mikil gleði en einnig barátta. „Maður var bara að berjast fyrir einhverjum betri heimi, svona eins og börn eru. Alveg frá því að ég var pínulítil vildi ég taka alla að mér og hjálpa öllum. Þetta var til að mynda Palestína og þetta var 2004 og þá var enginn að spá í Palestínu í kringum okkur og fólk vissi bara ekki neitt. Og það var líka innrásin í Írak. Og Kárahnjúkavirkjun og stóriðja, svona þessir dílar sem var verið að gera.“ Kolfinna er ekki aðeins með gott auga fyrir sviðsetningu og leikstjórn, heldur er hún einnig greinilega með gott eyra, en til að mynda var hún hluti af Reykjavíkurdætrum, sem var skrautlegur tími í hennar lífi. Á þeim tíma gekk Kolfinna undir listamannsnafninu Kylfan og muna eflaust margir eftir útistöðum sem hún átti í við rapparann Emmsjé Gauta. Alltaf félagar Tíst frá honum um að Reykjavíkurdætur væru feit pæling sem gengi einfaldlega ekki upp var mikið á milli tannanna á fólki þá fyrir ríflega tíu árum síðan. Kylfan svaraði því fullum hálsi. „Já, já, við vorum allan tímann félagar, sko,“ segir Kolfinna. Sigurbjartur Sturla Atlason fer með aðalhlutverkið í Hamlet en hann er einnig sambýlismaður Kolfinnu. Þau skrifuðu leikgerðina í sameiningu og er þetta í annað sinn sem þau leiða hesta sína saman. Þau féllu hvort fyrir öðru undir lokin á ferlinu fyrir Ást Fedru. „Níu vikur undir minni stjórn og það myndast eitthvað svona rosalegur, rosalegt ójafnvægi í svona karl- og kvenorkunni. Það gengur rosa vel hjá okkur að vinna saman og við erum að byggja ofan á grunninn okkar sem myndaðist í Ást Fedru þegar við vorum að rannsaka kalldýrið. Það gerir það að verkum að við erum komin með tungumál og aðferðir og traust og það sparast svo mikill tími af þessu. Og þetta er bara algjör unaður en á móti kemur að ég er leikstjóri og hann er leikari og ég að endingu ræð. Og svo bara þegar þetta er búið og við vorum í svona þrjá daga bara mjög pirruð út í hvort annað eftir frumsýninguna, já. Þá var það held ég að koma út sko, uppsafnað. Og ég var pirruð á öllu svona,“ segir Kolfinna en hér að ofan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Leikhús Borgarleikhúsið Menning Mest lesið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Sjá meira