Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. október 2025 15:57 Fólk streymdi að á vinnustofu Ingibjargar á laugardaginn. Eftirspurnin var slík að margir fóru tómhentir heim. Vísir Svo mikil aðsókn og troðningur var á sýningu í Stykkishólmi á laugardaginn að listakonan ætlar að endurskoða fyrirkomulagið fyrir næstu sýningu. Eftirspurn var mikil og dæmi um að hlutir hafi brotnað í troðningnum. Listakonan segir líklega tilefni til að hækka verðið á verkum sínum.
Ingibjörg H. Ágústsdóttir opnaði fuglasýningu á vinnustofu sinni í Stykkishólmi klukkan 13 á laugardaginn. „Þetta var svolítið kreisí,“ segir Ingibjörg þegar blaðamaður slær á þráðinn. „Hræðilegt,“ bætir hún við. Fréttastofu hafði borist ábending um ótrúlega aðsókn, troðning og baráttu um verk til sölu á listasýningunni. Fuglar á sýningunni.Ingibjörg „Maður veit náttúrulega aldrei hvað koma margir. Það eina sem ég veit alltaf er að ég er aldrei með nóg fyrir alla,“ segir Ingibjörg. Hún sé orðin vön mikilli aðsókn á fuglasýningar en þessi hafi verið sérstaklega kaótísk. „Þegar ég er með fuglasýningar þá er þetta svolítið orðið trendið,“ segir Ingibjörg. Þetta sé í síðasta skipti sem fyrirkomulagið verði með þessum hætti. Allir mættir til að kaupa Blaðamaður skoðar Facebook-síðu Ingibjargar þar sem sýningin hefur verið auglýst síðan í lok ágúst. Á síðunni leyfir hún fylgjendum sínum að fylgjast með henni skapa hvert glæsiverkið á fætur öðru. Mikið af fuglum en líka fjallkonum og fleiri munir. Aðspurð hvort flestir komi á fuglasýningar til að kaupa eða skoða er svarið skýrt: Ingibjörg „Það kemur enginn á fuglaopnanir til að skoða,“ segir listamaðurinn sem þekkir aðdáendur sína greinilega nokkuð vel. Hún hafi áttað sig á því löngu áður en dyrnar voru opnaðar klukkan eitt á laugardaginn að fólk var farið að streyma að. „Það eru margir búnir að bíða lengi og fylgjast með. Mæta svo spenntir, hanga á hurðinni til að reyna að vera fyrstir inn. Svo fá þeir það sem þeir vildu eða ekki neitt.“ Ingibjörg Það sé ekki þannig að fólk hafi beint verið dónalegt en aðstæðurnar séu óþægilegar. Ekki hægt að gera öllum til geðs „Þetta er svona þegar 70-80 manns koma inn í rými sem tekur í mesta lagi 25-30 með góðu móti. Það eru allir að reyna að láta taka frá fyrir sig sömu fuglana,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg Á Facebook-síðu hennar má sjá beiðnir frá fólki um að taka frá fugla sem Ingibjörg segist ekki geta orðið við. Vandamálið sé eilíflega það sama. „Það er ekki hægt að gera öllum til geðs.ׅ“ Aðspurð hve margir hafi mætt á opnunina segist hún ekki hafa nokkra hugmynd. Líklega hafi áttatíu manns verið inni þegar mest var en uppsafnaður fjöldi er töluvert meiri. Hún hafi ekki haft möguleika á að telja en á tímabili hafi hún ekki séð neitt annað en fólk. Ingibjörg „Vinkona mín var hérna að hjálpa mér en ég held að hvorug okkar hafi verið nógu vel undir þetta búin,“ segir Ingibjörg. Þótt hún viti af áhuga fólks þá renni maður alltaf blint í sjóinn með svona opnanir. Ingibjörg „Maður setur viðburð á Facebook og svo mæta miklu, miklu fleiri,“ segir Ingibjörg og líklega megi opnununum við óvissuverð. Tvíbókanir og misskilningur Fjölmargir listamenn skera út fugla en fuglar Ingibjargar njóta sérstöðu. Á sýningunni voru alls konar fuglar, um fimmtíu stakir fuglar sem sumir voru seldir í pörum. Hvítar álftir, svartir svanir, himbrimar, nokkrar gæsategundir, tjaldar, uglur, rjúpur og lundar ruku út eins og heitar lummur. Ingibjörg Ingibjörg sá sig knúna til að senda út tilkynningu á Facebook-síðu sinni í dag. „Það mun taka mig nokkra daga að greiða úr misskilningi og tvíbókunum en allt hefst þetta á endanum,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg „Ég vil hins vegar benda á að allir fuglar eru seldir og ég er ekki að taka pantanir, mun einnig taka mér góðan tíma í að ákveða hvenær, hvort eða hvernig næsta fuglasýning verður.“ Brotnir munir en þó ekki fuglar Ingibjörg hefur skorið út frá árinu 2010 og er sífellt að bæta við sig fuglum. Hvítu svanirnir hafa notið mikilla vinsælda en það gildir um fleiri vörur. Ingibjörg „Það er einhver rómantík í kringum hvítu svanina,“ segir Ingibjörg. Þótt blaðamaður hafi ekki hagfræðigráðu upp á arminn veltir hann fyrir sér hvort ekki sé tilefni til að hækka verðið á verkunum. Slíkar eru vinsældirnar. Ekki bara fuglar heldur líka ugla.Ingibjörg „Það er örugglega framhaldið. Ég ætla að gefa mér góðan tíma í að hugsa framhaldið, hvernig ég geri þetta. Þetta er auðvitað vinnan mín líka svo ég er ekki að kvarta,“ segir Ingibjörg og bætir við að hún hafi líka áhuga á að gera fleiri verk en fugla. Ingibjörg er búsett í Hólminum þar sem vinnustofan hennar er í kjallara gamla verslunarhúss Tang & Riis í Stykkishólmi. Sýningin mun standa til 2. nóvember og er opið milli 13 og 16. Þar er hægt að dást að fuglunum sem eru þó allir seldir. Hún þakkar fyrir að enginn hafi slasast í kraðakinu. „Það brotnaði eitthvað í troðningnum en ekki fuglarnir þannig að þeir sluppu.“
Menning Stykkishólmur Handverk Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Sjá meira