Leik lokið: N-Írland - Ísland 0-2 | Varnarjaxlarnir tryggðu sigur Kolbeinn Kristinsson skrifar 24. október 2025 19:51 Glódís Perla fór fyrir sínu liði í kvöld. vísir/getty Ísland lagði Norður-Írland, 0-2, ytra í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspili um að halda sæti sínu í A-deild Þjóðadeildarinnar. Seinni leikurinn fer fram á Laugardalsvelli næsta þriðjudag. Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir kom Íslandi yfir í fyrri hálfeik og hinn miðvörðurinn, Ingibjörg Sigurðardóttir, bætti öðru marki við í seinni hálfleik. Íslenska liðið hafði talsverða yfirburði í leiknum og sigurinn sanngjarn. Nánar verður fjallað um leikinn á eftir. Landslið kvenna í fótbolta Þjóðadeild kvenna í fótbolta