Leik lokið: Njarðvík-Tindastóll 92-70 | Njarðvíkurkonur bruna á­fram

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Danielle Rodriguez og félagar í Njarðvík byrja tímabilið vel.
Danielle Rodriguez og félagar í Njarðvík byrja tímabilið vel. Vísir/Anton

Njarðvíkurkonur héldu áfram góðri byrjun sinni í Bónus-deild kvenna í körfubolta eftir sannfærandi heimasigur á Tindastólskonum í kvöld.

Njarðvík vann leikinn með 22 stiga mun, 92-70, eftir að hafa verið tólf stigum yfir í hálfleik, 45-33.

Njarðvíkurkonur hafa unnið þrjá fyrstu leiki tímabilsins en hinir tveir voru báðir á útivelli. Þær ætluðu að byrja vel á heimavelli líka og gestirnir frá Sauðárkróki réðu lítið við mjög öflugt Njarðvíkurlið.

Brittany Dinkins var með 21 stig, 9 fráköst og 15 stoðsendingar fyrir Njarðvík, Paulina Hersler skoraði 18 stig og Danielle Rodriguez var með 16 stig.

Madison Sutton (26 stig, 21 frákast og 6 stoðsendingar) og Marta Hermida (20 stig og 8 stoðsendingar) voru öflugar en það dugði skammt.

Nágrannarnir Njarðvík og Grindavík eru því einu liðin með fullt hús eftir þrjá leiki. Tindastóll er með einn sigur í þremur leikjum.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira