Fótbolti

Dan­mörk - Grikk­land 3-1 | Danir fóru létt með Grikki

Rasmus Hoejlund skoraði eitt mark gegn Grikklandi í kvöld.
Rasmus Hoejlund skoraði eitt mark gegn Grikklandi í kvöld. Vísir / Getty

Danmörk tyllti sér á topp C-riðils í undankeppni HM 2026 og færist nær lokakeppninni með sigri á Grikklandi á Parken. Leikurinn fór 3-1 en Danir voru þremur mörkum yfir í hálfleik.

Rasmus Højlund kom Dönum yfir á 21. mínútu en Danmörk gerði út um leikinn á tveimur mínútum í lok fyrri hálfleiks. Joachim Andersen tvöfaldaði forskotið á 40. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Mikkel Damsgaard en Damsgaard átti eftir að skora um mínútu síðar. Þá voru Grikkir að leika sér að eldinum og skölluðu boltann beint á Dani á eigin vallarhelming og boltinn bars til Damsgaard sem skilaði boltanum í netið.

Grikkland klóraði í bakkann í seinni hálfleik en átti ekki erindi sem erfiði. Lokastaðan 3-1 og Danmörk kom sér í 10 stig á toppi C riðils í undankeppni HM ´26. Danmörk og Skotland eru jöfn að stigum og búin að tryggja sér efstu tvö sæti riðilsins. Liðin mætast í lokaleik riðilsins þann 18. nóvember sem verður líklega úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×