Innherji

Eig­andi Vélfags segir vinnu­brögð ráðu­neytisins ekki vera eðli­lega stjórn­sýslu

Hörður Ægisson skrifar
Áður en aðgerðir utanríkisráðuneytisins hófust störfuðu 33 manns hjá fyrirtækinu, sem er með höfuðstöðvar á Akureyri og starfsemi í Kópavogi og Ólafsfirði.
Áður en aðgerðir utanríkisráðuneytisins hófust störfuðu 33 manns hjá fyrirtækinu, sem er með höfuðstöðvar á Akureyri og starfsemi í Kópavogi og Ólafsfirði.

Aðaleigandi hátæknifyrirtækisins Vélfags, sem stendur frammi fyrir gjaldþroti eftir að hafa sætt viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við rússneskt útgerðarfélag, lýsir vinnubrögðum íslenskra stjórnvalda sem „mótsagnakenndum“ og ekki til marks til marks um eðlilega stjórnsýslu. Fyrirtækið er grunað um að vera raunverulega í eigu Norebo JSC, og utanríkisráðuneytið segir engin gögn hafa borist sem geti sýnt fram á annað, en Evrópusambandið hefur sakað það félag um styðja við og framkvæma aðgerðir Rússlandsstjórnar sem „grafa undan eða ógna öryggi“ í álfunni.


Tengdar fréttir

Fram­kvæmda­stjórinn hættir og níu sagt upp

Trausti Árnason hefur sagt starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri tæknifyrirtækisins Vélfags á Akureyri og þá hefur níu starfsmönnum fyrirtækisins verið sagt upp.

Segir stefna í að Vélfag verði lagt niður vegna þvingananna

Erlendur eigandi tæknifyrirtækisins Vélfags á Akureyri segir að það verði líklega lagt niður og starfsmönnum sagt upp vegna efnahagslega þvingana sem það sætir vegna tengsla við Rússland. Hann gagnrýnir harðlega utanríkisráðuneytið og Arion banka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×