Á ég að hætta í núverandi sparnaði? Björn Berg Gunnarsson skrifar 7. október 2025 07:02 Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. 72 ára gamall karlmaður spyr: Ég er hættur að vinna og er skuldlaus. En ég á peninga, rétt yfir 60 milljónir sem ég ávaxtaði á ávöxtunarreikningum bankanna og fékk hæstu vexti sem síðan skertu greiðslur frá TR. Þannig að ég fór til Íslandsbanka og þeir sjá um að ávaxta peningana mína í sjóðum, en það sem gerist er að á 6 mánuðum hef ég tapað 2 milljónum. Hvað á ég að gera? Taka þetta úr fjárstýringu og setja þetta inn á ávöxtunarreikninga.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Mest lesið Hundrað þúsund í höfuðstólinn eru orðin að átján í dag Neytendur Búnir að gefast upp á fríum stæðum við TBR Neytendur Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Viðskipti innlent Hvað er eiginlega í vatninu á Höfn í Hornafirði? Framúrskarandi fyrirtæki Pavel í baðstofubransann Viðskipti innlent Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Ekki grínast um uppsagnir, hnýsast um samtölin eða baktala Atvinnulíf Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Viðskipti innlent Segja ákvörðun um verndartolla enn slegið á frest Viðskipti innlent „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Pavel í baðstofubransann Segja ákvörðun um verndartolla enn slegið á frest Tveggja ára gamall umræðuþráður hafði áhrif á bókanir ferðaþjónustufyrirtækis Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Fundinum mikilvæga frestað Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga Skýrt að verndarráðstafanir þurfi að ná yfir alla utan tollabandalags Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Búi sig undir að berja í borðið Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Sjá meira
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi ætlar að svara spurningum frá lesendum Vísis þar sem lesendum gefst kostur á að spyrja hann spurninga sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu neðst í greininni. Meðal algengustu mistaka sem fjárfestar og sparifjáreigendur gera er að færa sig vegna ávöxtunar sem þegar er komin fram. Okkur virðist því miður eðlislægt að meta ákvarðanir um hvar koma skuli peningum fyrir út frá árangri í fortíð. Þegar fortíðin stýrir ákvörðunum Það gæti leynst lærdómur í því að líta áratugi aftur í tímann og sjá hvernig sveiflur á mörkuðum eru og ávöxtun kemur fram yfir langt tímabil, en það sem villir okkur enn frekar sýn er að við lítum allt of skammt aftur í tímann, sjaldan lengur en eitt ár. Við mælum ekki með því að erlendir ferðamenn pakki bara stuttbuxum og skýlu fyrir vetrarfríið til Íslands þótt það hafi verið heitt og gott í sumar. Sömuleiðis ættum við ekki að leggja peninga inn á verðtryggðan reikning vegna þess að það mældist verðbólga undanfarna 12 mánuði, eða kaupa gjaldeyri þar sem krónan hefur þegar veikst. Það skiptir framtíðina engu máli hvað þegar hefur gerst, en þetta gera þó margir með slæmum árangri og sömu hegðun sjáum við þegar ávaxtað er í sjóðum. 6 mánuðir eru skammur tími Nú veit ég ekki hvaða sjóð eða eignastýringarleið þú valdir þér en það er gott að hafa í huga að 6 mánuðir eru afar stuttur tími á verðbréfamarkaði. Ég veit að það er sárt og getur verið kvíðavaldandi að sjá eignirnar sínar lækka í verði. Að taka ákvörðun um fjárfestingarstefnu út frá 6 mánaða tímabili er þó vafasamt sama hvers kyns fjárfesting á í hlut, nema ætlunin hafi verið að ávaxta féð aðeins til 6 mánaða. Til svo skamms tíma eru verðbréf sjaldan talin henta og algengast að fé sé geymt á bankabókum. Þá er ágætt að hafa í huga að ekkert er tapað fyrr en selt er með tapi. Gengi sjóða er reiknað daglega og hreyfist í takti við markaðsverð undirliggjandi eigna. Á hlutabréfamarkaði er ekki óalgengt að sveiflur geti varað í fleiri ár og hafa þar bæði verið fleiri og lengri slæm tímabil en á áhættuminni eignum, en þó hærri söguleg ávöxtun en víðast annars staðar. Fjárfestingar á verðbréfamarkaði eru almennt ekki hugsaðar til mjög skamms tíma og ef þú hættir þér í að velja ávöxtunarleið út frá skammtímaárangri í fortíð gætir þú verið að spila nóló í þeim leik sem kennslubækurnar segja okkur að miða við einföld lögmál með langtímanálgun í huga. Hvar eigum við þá að hafa spariféð? Ég leyfi mér hér að deila skoðun minni á almennri nálgun varðandi fjárfestingar, en ekkert af því sem ég veit um þína hagi gefur mér þó tilefni til að taka afstöðu til þess hvar þínum sparnaði er best fyrir komið. Oftast er mælt með því að geyma fé með hætti sem við bæði skiljum vel og líður vel með. Með slíkt í huga er tilvalið að meta núverandi fjárfestingu, en ekki út frá árangri í fortíð. Hvar líður þér best með spariféð og hvert er markmiðið með ávöxtun þess? Er það eingöngu að ná sem mestu fé frá skattgreiðendum í gegnum almannatryggingar, án tillits til ávöxtunar þinnar? Er markmiðið kannski að freista þess að láta sparnaðinn vaxa sem mest og sætta sig við sveiflur og nokkra áhættu? Eða er það kannski að koma á féð bæði belti og axlaböndum og leggja fyrst og fremst áherslu á að verja verðgildi þess? Þegar þetta liggur fyrir ætti reyndur ráðgjafi í bankanum þínum að geta aðstoðað þig við að endurmeta fjárfestingarstefnuna þína héðan í frá. Áhrifin á almannatryggingar Þú nefnir að þú hafir fært þig af bankabók yfir í fjárstýringu hjá banka þar sem vextir hafi skert greiðslur almannatrygginga. Það er rétt að vextir hafa áhrif á þær greiðslur sem greiddar eru í gegnum Tryggingastofnun og má nánar lesa um áhrifin hér. Með fjárfestingu í sjóði er skerðingum og skattgreiðslum frestað, þar sem enginn hagnaður hefur myndast fyrr en innleyst er. Slíkar fjárfestingar geta til langs tíma gefið okkur færi á að ávaxta áfram það fé sem annars hefði farið í fjármagnstekjuskatt (22%) og skerðingar. Þannig fást óskertir vaxtavextir þar til innleyst er, sem getur að sjálfsögðu reynst vel, þar sem fjármagnstekjuskattur er afar hár á svona háum fjárhæðum. Ef engar fjármagnstekjur eru innleystar á tilteknu ári er þó ekki verið að nýta frítekjumark fjármagnstekna hjá skattinum auk þess sem skattgreiðslu er frestað og ekki er útilokað að fjármagnstekjuskattur hafi verið hækkaður. Hann hefur þegar verið hækkaður um 120% frá hruni og svo virðist sem áhugi sé á enn frekari hækkunum, því miður. Næstu skref Það er ljóst að þér líður óþægilega með þessa fjárfestingu og árangurinn af henni hingað til. Ég er viss um að starfsfólk einkabankaþjónustu Íslandsbanka tekur vel á móti þér ef þú vilt setjast með þeim og ræða málin upp á nýtt. Vertu hreinskilinn og skýr þegar þú lýsir fyrir þeim hvað þú vilt og mundu að það er ekki bannað að skipta um skoðun, þetta eru þínir peningar.
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi ætlar að svara spurningum frá lesendum Vísis þar sem lesendum gefst kostur á að spyrja hann spurninga sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu neðst í greininni.
Björn Berg Gunnarsson Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Mest lesið Hundrað þúsund í höfuðstólinn eru orðin að átján í dag Neytendur Búnir að gefast upp á fríum stæðum við TBR Neytendur Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Viðskipti innlent Hvað er eiginlega í vatninu á Höfn í Hornafirði? Framúrskarandi fyrirtæki Pavel í baðstofubransann Viðskipti innlent Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Ekki grínast um uppsagnir, hnýsast um samtölin eða baktala Atvinnulíf Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Viðskipti innlent Segja ákvörðun um verndartolla enn slegið á frest Viðskipti innlent „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Pavel í baðstofubransann Segja ákvörðun um verndartolla enn slegið á frest Tveggja ára gamall umræðuþráður hafði áhrif á bókanir ferðaþjónustufyrirtækis Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Fundinum mikilvæga frestað Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga Skýrt að verndarráðstafanir þurfi að ná yfir alla utan tollabandalags Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Búi sig undir að berja í borðið Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Sjá meira