Innlent

Gripnir glóðvolgir með ís­lensk lundaegg í Hollandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lundinn er friðaður samkvæmt lögum en undantekningar til veiða eru á ákveðnum tímum og á svæðum þar sem eggja- eða ungataka lunda telst til hefðbundinna hlunninda.
Lundinn er friðaður samkvæmt lögum en undantekningar til veiða eru á ákveðnum tímum og á svæðum þar sem eggja- eða ungataka lunda telst til hefðbundinna hlunninda. Vísir/Vilhelm

Starfsfólki dýragarðins Blijdorp í Rotterdam hefur tekist að bjarga meirihluta lunda­eggja sem fundust í farangri þriggja Þjóðverja á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í júní. Eggin voru alls 51 og með snörum handtökum klöktust út 42 ungar.

„Þetta var gríðarlega vinna. Fyrsti unginn braust út úr eggi eftir aðeins fjóra daga og síðan komu fleiri smám saman,“ segir Erwin de Zwart, talsmaður dýragarðsins, í samtali við hollenska miðilinn NOS sem heimsótti dýragarðinn. 

„Venjulega sér móðirin um ungana, en nú þurftum við að taka það hlutverk að okkur.“

Útungunarofn í farangri

Eggin fundust í handfarangri þriggja þýskra smyglara sem komu frá Íslandi. Tollvörður sem uppgötvaði þau sagðist strax hafa séð að þetta væru ekki hænuegg. Í farangri þeirra fannst einnig útungunarofn sem hélt eggjunum heitum fram að brottför.

Eggin voru flutt með hraði í bíl með sírenur í fullum gangi í Blijdorp dýragarðinn sem hefur reynslu af útungun sjaldgæfra fugla, þar á meðal lunda. Allar útungunarvélar garðsins voru nýttar. Ungarnir báru sig vel, voru bólusettir og merktir. Þeir fengu að slaka á bak við tjöldin áður en gestir fengu að bera þá augum.

Arðbær glæpastarfsemi

Auk lundaeggja voru þýsku smyglararnir með 28 egg frá skúfönd og æðarfugli. Aðeins níu ungar lifðu úr þeim eggjum.

Lundinn nýtur verndar hér á landi og sækjast smyglarar í hann samkvæmt umfjöllun NOS. Hollenska eftirlitsstofnunin NVWA hefur kallað viðskipti með verndaðar tegundir eina arðbærustu glæpastarfsemi heims. Fullorðinn lundi getur selst fyrir nokkur þúsund evrur.

Einn fékk nafnið Mitchell

Ungarnir í Blijdorp verða áfram þar til þeir styrkjast og verða síðan fluttir í aðra dýragarða til að taka þátt í alþjóðlegu ræktunarátaki. Þeim verður ekki sleppt lausum í náttúruna enda eigi þeir lítinn möguleika þar uppaldir af mönnum. 

Smyglararnir voru í síðustu viku dæmdir til að greiða 7.500 evrur í sekt hver eða sem svarar til um milljón króna. Tollvörðurinn sem fann eggin segir líklega ætla að heimsækja fuglana aftur. 

Stór ástæða er nýleg nafngjöf eins lundans sem hefur fengið nafnið Mitchell í höfuðið á tollverðinum en alla jafna er dýrum í Blijdorp ekki gefin nöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×