Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. september 2025 14:14 Bandaríska alríkislögreglan FBI birti þessar myndir í gær og óskaði eftir aðstoð almennings við að afla upplýsinga um manninn á myndunum. FBI Hinn 22 ára gamli Tyler Robinson hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa skotið Charlie Kirk til bana. Spencer Cox, ríkisstjóri Utah, greindi frá þessu á blaðamannafundi nú fyrir stundu. „
Við náðum honum,“ sagði Cox við upphaf blaðamannafundarins sem hófst rúmri klukkustund seinna en hann hafði verið boðaður. Fangamyndir af Tyler Robinson sem birtar hafa verið í Bandaríkjunum. Í gærkvöldi hafi fjölskyldumeðlimur Tyler Robinson haft samband við fjölskylduvin sem hafi síðan haft samband við lögregluna og upplýst um aðkomu hans að málinu. Robinson hafi játað gjörðir sína fyrir fjölskyldumeðlim, sem áður hefur komið fram í fréttum að hafi verið faðir hans. Gögn málsins, svo sem myndbönd af vettvangi, bíll Robinson og fötin sem hann klæddist styðji við þann grun að Robinson hafi verið sá sem varð Kirk að bana. „Hey fasisti, gríptu!“ Hann hafi að undanförnu þróað með sér öfgafyllri pólitískar skoðanir og hafi meðal annars lýst andúð sinni á Charlie Kirk við matarborðið nýlega þar sem hann hafi sagt málflutning Kirk vera hatursfullan. Þá fundust áletruð byssukúluhylki við rannsókn málsins þar sem meðal annars standi „hey fasisti, gríptu!“ og „o bella ciao, bella ciao,“ og „ef þú lest þetta þá ertu samkynhneigður“. Trump vill sjá dauðarefsingu Charlie Kirk, sem var 31 árs gamall og tveggja barna faðir, var skotinn til bana á viðburði þar sem hann rökræddi við háskólanema í Utah í fyrradag. Morðingi hans hafði síðan gengið laus þar til hann var handtekinn snemma í morgun, um klukkan ellefu í gærkvöldi að staðartíma í Utha. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi fyrst frá því að hinn grunaði væri í haldi í viðtali við Fox News sjónvarpsstöðina fyrr í dag. Þá virtist forsetinn ekki hafa mjög nákvæmar upplýsingar um hinn grunaða, en fram kom í máli forsetans í viðtalinu að faðir hans hafi hjálpað til við að koma honum í hendur lögregluyfirvalda. Sjálfur voni Trump að morðingi Kirks, sem var náinn bandamaður forsetans, verði dæmdur til dauðarefsingar fyrir verknaðinn. Hafði lýst áformunum „í gríni“ í skilaboðum Cox lýsti því einnig hvernig skilaboð sem gengið hafi á milli Tyler og herbergisfélaga hans bendi til þess að árásin hafi verið skipulögð. Rannsakendur hafi yfirheyrt herbergisfélagann sem hafi sagt að hann hafi „grínast“ með planið á samskiptamiðlinum Discord. Hann hafi sýnt lögreglu skilaboðin þar sem Tyler hafi lýst því að það þurfi að munda riffil úr skotfæri og skilja hann eftir í runna. Lýsingin í skilaboðunum hafi verið nokkuð ýtarleg varðandi það hvar og hvernig ætti að skilja riffilinn eftir, vafinn inn í handklæði. Fréttin hefur verið uppfærð.
Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Donald Trump Skotvopn Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira