Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. september 2025 19:52 Stefán Einar og Sigmar ræddu morðið á Charlie Kirk. Vísir/Ívar Fannar Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Stefán Einar Stefánsson ræddu umræðu sem hefur skapast eftir morðið á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk sem var myrtur í gær. Hugtök líkt og málfrelsi og þöggun hafa verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarna daga.
Mikil umræða hefur skapast í kjölfar morðsins og hafa bæði Bandaríkjamenn en einnig Íslendingar keppst um að tjá sig um morðið í dag, til að mynda Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins. „Mér finnst þetta algjörlega hræðilegt. Þarna er skelfilegt ofbeldisverk, það á aldrei að drepa fólk sama þótt þú sért hjartanlega ósammála skoðunum þess,“ segir Sigmar. Hann telur að hluti af því af hverju svona margir láti málið sig varða sé vegna þess að myndskeið af atvikinu birtist á samfélagsmiðlum skömmu eftir að atburðurinn átti sér stað. Stefán Einar segir Kirk hafa verið „stórt nafn“ í Bandaríkjunum. „Kannski má færa rök fyrir því að það sé fyrst og fremst það sem valdi þessari bylgju í umræðunni. Svo er enn óljóst hver stóð að baki þessu og hver ástæðan er, það mun móta umræðuna líka. Það hversu nálægt hann stóð Donald Trump og syni hans líka, það hefur líka áhrif á viðbrögðin,“ segir Stefán. Mikil skautun í umræðunni „Það var ótrúlegt að sjá að mjög skömmu eftir að hann var úrskurðaður látinn þá fóru fréttastöðvar sem eru andstæðar Trump, MSNBC til dæmis, yfir að nú myndi Trump nýta þetta í einhverjum pólitískum tilgangi eða slíkt. Það kemur á óvart að umræðan skyldi strax verða svo heiftúðleg í báðar áttir þegar maðurinn liggur látinn á dánarbeði,“ segir Stefán. „Þessi skautun er svakalega mikil í Bandaríkjunum en auðvitað spilast úr eftir því hvernig menn tala í framhaldinu og hversu klókir þeir eru sem fara með völd í samfélaginu, það stýrir því hvernig viðbrögðin verða,“ segir Sigmar. Stefán segir að ekki sé hægt að yfirfæra umræðuna um skautun yfir á íslenskt samfélag. „Við getum ekki gert það. Meðal annars er það skotvopnaumræðan sem hefur áhrif á þetta. Annar viðauki stjórnarskrárinnar þar veitir þeim þennan rétt til að bera skotvopn sem er mjög umdeildur og hefur mikinn fórnarkostnað augljóslega í för með sér, þannig það er ekki sambærilegt.“ Menn veifi þöggunarspilinu of fljótt Umræðan snerist síðan að málfrelsi og þöggun en hugtökin hafa mikið verið til umræðu undanfarna daga eftir Kastljósþátt þar sem Snorri Másson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, talskona Samtakanna 78, tókust á um bakslag réttinda hinsegin fólks. „Síðan sjáum við það í umræðunni hérna heima tilraunir til þöggunar, ég held að það sé klárt mál. Við sjáum líka glitta í hættuna á ofbeldi, nýjasta dæmið er þessi öryggisgæsla sem þurfti að setja við heimili Snorra Mássonar,“ segir Stefán. Hann segir að Kirk hafi alltaf talað fyrir því að ræða málin, það væri í lagi ef orðin væru hvöss, en takast ætti á með orðum en ekki vopnum. Spurningin sé hvar eigi að draga línuna. „Ég held að við verðum að tryggja það að menn geti tjáð sig og fólk dragi sínar ályktanir af orðræðunni hvort að menn séu gjaldgengir inn á þing eða í borgarstjórn eða hvað það er,“ segir Stefán. „Núna er krafan sú að menn fái það ekki, bara ný ályktun í borgarstjórn og yfirlýsingar fulltrúa þaðan voru þess efnis að Snorri Másson ætti ekki erindi í opinbera stefnumörkun. Þannig að það er verið að reyna jaðarsetja fólk vegna skoðana sinna og það er alveg ofboðslega hættulegur leikur því á einhverjum tímapunkti snýst pendúllinn við og völdin fara á milli manna og þá getur sá sem á einum tímapunkti ætlar að þagga niður í einum einmitt orðið fórnarlamb sama viðhorfs.“ Sigmar segist taka undir að málið snúist um málfrelsi, en allir ættu að fá tækifæri til að tjá sig, sama hversu heimskulegar skoðanir þess væru. „Auðvitað verða menn að þola og það er ekki merki um þöggun þegar að orð sem meiða einhverja tiltekna hópa, einhverja tiltekna einstaklinga, þegar þeim er mætt með gagnrýni. Þeir sem ástunda þannig orðræðu að það meiðir og særir einhverja hópa, þeim er auðvitað mætt í nafni málfrelsis svolítið harkalega með orðum en auðvitað á ekki að vera eitthvað ofbeldi eða undirtónn ofsókna eða slíks,“ segir hann. „En málfrelsi eigum við að hafa en mér finnst menn oft flagga þöggunarspilinu svolítið fljótt vegna þess að málfrelsi snýst líka um það að ég hef frelsi til þess að gagnrýna einhverjar skoðanir sem mér finnst heimskulegar og meiða annað fólk.“
Morðið á Charlie Kirk Tjáningarfrelsi Bandaríkin Skotvopn Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Sjá meira