Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Atli Ísleifsson skrifar 5. september 2025 12:01 Verslun Húrra í Smáralind. Húrra Reykjavík mun á næstu vikum opna nýja verslun í Smáralind í Kópavogi og verður því með þrjár verslanir á höfuðborgarsvæðinu – á Hverfisgötu 18a, í Kringlunni og Smáralind.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum Húrra. Haft er eftir Marteini Högna, framkvæmdastjóra Húrra Reykjavík, að þau séu spennt að stíga þetta næsta skref með Smáralind. „Þar standa nú yfir miklar breytingar, meðal annars með tilkomu nýs veitingasvæðis sem mun bæta upplifunina í húsinu. Þá hefur einnig verið mikil uppbygging í kringum Smáralind og íbúum fjölgað á undanförnum árum, sem gerir staðsetninguna enn mikilvægari fyrir okkur,“ segir Marteinn Högni. Í tilkynningunni segir að verslunin verði staðsett á 2. hæð Smáralindar og sé hönnuð af Haf Studio í samstarfi við Húrra. „Þar verður áfram boðið upp á fjölbreytt úrval alþjóðlegra vörumerkja sem ekki eru fáanleg annars staðar á Íslandi. Meðal þeirra eru Stone Island, Norse Projects, Brutta Golf, Sporty & Rich, Won Hundred og fjölbreytt úrval skófatnaðar frá Adidas, Nike, New Balance, Salomon og Birkenstock. Með nýrri staðsetningu í Smáralind verður Húrra aðgengilegra fyrir stærri hóp viðskiptavina og tekur þátt í þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað í stærstu verslunarmiðstöð landsins.“
Smáralind Kópavogur Verslun Tíska og hönnun Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira