Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Kjartan Kjartansson skrifar 12. ágúst 2025 11:59 Lögreglumaðurinn David Rose sem féll fyrir hendi árásarmannsins sem skaut á höfuðstöðvar CDC í Atlanta var tveggja barna faðir og átti von á því þriðja. AP/Charlotte Kramon Maður sem lét byssukúlum rigna yfir skrifstofur bandarískrar heilbrigðisstofnunar fyrir helgi er sagður hafa verið knúinn áfram að samsæriskenningum um bóluefni gegn Covid-19. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn vara við afleiðingum slíkra samsæriskenninga í kjölfar árásarinnar.
Lögreglumaður lét lífið þegar þrítugur karlmaður hóf skothríð á fjórar byggingar Sjúkdómavarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) í Atlanta í Georgíu síðdegis á föstudag. Alls skaut maður um 180 skotum og braut á annað hundrað rúður í byggingunum sem hýsa skrifstofur stofnunarinnar, að sögn AP-fréttastofunnar. Árásarmaðurinn lést af völdum skotsára en ekki hefur verið gefið út hvort að hann svipti sig sjálfur lífi eða hvort að lögreglumenn hafi skotið hann. Hann er sagður hafa verið sannfærður um bóluefni gegn Covid-19 hafi gert hann þunglyndan og skapað hjá honum sjálfsvígshugsanir. Bóluefnin yllu öðrum einnig skaða en yfirvöld hylmdu yfir það. Stjórnendur CDC sögðu starfsmönnum á fjarfundi um helgina að árásin hefði verið markviss og að yfirlögðu ráði. Heimilidarmenn Washington Post innan stofnunarinnar segja að lögregla telji að skoðanir mannsins á bóluefnunum hafi verið tilefni árásarinnar. Lögregla gengur út frá að árásarmaðurinn hafi verið veikur eða talið sig vera það. Lyf við geðklofa fundust við húsleit á heimili hans, að sögn CNN-fréttastöðvarinnar. Nágranni árásarmannsins sagði staðarfjölmiðli í Atlanta að hann hefði ítrekað borið upp vantraust sitt á bóluefnum gegn Covid-19 í samtölum. Spurningar um ábyrgð heilbrigðisráðherrans Stoðlausar samsæriskenningar um öryggi bóluefnanna gegn Covid-19 hafa lengi verið á sveimi en Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, hefur verið einn helsti talsmaður þeirra. Hann hefur meðal annars kallað bóluefnin „banvænustu bóluefni sem framleidd hafa verið“. Í sömu viku og árásin átti sér stað tilkynnti hann að Bandaríkjastjórn ætlaði að hætta að fjármagna þróun svonefndra mRNA-bóluefna en þau hafa verið sérstök þráhyggju samsæriskenningasmiða eins og hans. Skotárásin hefur því vakið upp spurningar um ábyrgð Kennedy og annarra samsæriskenningasmiða. Margir starfsmenn CDC eru sagðir reiðir Kennedy og Donald Trump forseta, að sögn Washington Post. Trump hefur ekki fordæmt árásina og Kennedy þykir hafa brugðist seint og illa við. „Enginn ætti að verða fyrir ofbeldi þegar hann vinnur að því að vernda heilsu annarra,“ sagði Kennedy í yfirlýsingu um árásina. Sprungur eftir byssukúlur sjást á gluggum höfuðstöðva CDC í Atlanta í Bandaríkjunum. Maður haldinn samsæriskenningum um Covid-bóluefni lét skotin dynja á byggingunni.AP/Miguel Martinez/Atlanta Journal-Constitution Einn fyrrverandi starfsmaður CDC segir AP að áralöng rangindi um bóluefni og lýðheilsu hafi hlotið að hafa áhrif á geðheilsu fólks og „leiða til ofbeldis“ á endanum. Annar sagði Washington Post að bein tengsl væru á milli rógsins um CDC í kórónuveirufaraldrinum og vísvitandi lyga og upplýsingafals sem héldi áfram fram á þennan dag. „Margir þeirra sem eru uppsprettur þessara lyga eru nú með ræðupúltið og sveipaðir virðugleika embætta innan ríkisstjórnarinnar,“ sagði starfsmaðurinn. „Við verðum að gera okkur grein fyrir að fólk er að hlusta. Þegar þú fullyrðir hluti um öryggi og virkni bóluefna sem hefur ítrekað verið sýnt fram á að séu rangir getur það haft óviljandi afleiðingar,“ sagði Jerome Adams, fyrrverandi landlæknir Bandaríkjanna á fyrra kjörtímabili Donalds Trump forseta.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Bólusetningar Donald Trump Tengdar fréttir Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Prófessor í smitsjúkdómalækningum segir ákvörðun heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna um að rifta samningum um þróun mRNA-bóluefna vera slæmar fréttir fyrir heimsbyggðina. Hún muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar. Vagga vísindalegrar þekkingar sé að leggja upp laupana. 6. ágúst 2025 19:33 Hætta þátttöku í alþjóðlegu bólusetningarsamstarfi fyrir börn Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna og þekktur afneitari læknavísinda hélt reiðilestur yfir þátttakendum á fundi alþjóðlegs samstarfsverkefnis um bólusetningar barna í gær. Þar tilkynnti hann að Bandaríkin ætluðu að hætta að styrkja bólusetningarnar sem hafa bjargað milljónum mannslífa. 26. júní 2025 13:15 Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna og þekktur andstæðingur bóluefna rak ráðgjafaráð alríkisstjórnarinnar um bólusetningar eins og það leggur sig. Ráðið hefur verið skipað læknum og vísindamönnum frá læknadeildum helstu háskóla landsins. 10. júní 2025 10:33 Mest lesið Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Lést í sprengingunni Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Öllu flugi dagsins aflýst Innlent Fleiri fréttir Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Sjá meira
Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Prófessor í smitsjúkdómalækningum segir ákvörðun heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna um að rifta samningum um þróun mRNA-bóluefna vera slæmar fréttir fyrir heimsbyggðina. Hún muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar. Vagga vísindalegrar þekkingar sé að leggja upp laupana. 6. ágúst 2025 19:33
Hætta þátttöku í alþjóðlegu bólusetningarsamstarfi fyrir börn Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna og þekktur afneitari læknavísinda hélt reiðilestur yfir þátttakendum á fundi alþjóðlegs samstarfsverkefnis um bólusetningar barna í gær. Þar tilkynnti hann að Bandaríkin ætluðu að hætta að styrkja bólusetningarnar sem hafa bjargað milljónum mannslífa. 26. júní 2025 13:15
Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna og þekktur andstæðingur bóluefna rak ráðgjafaráð alríkisstjórnarinnar um bólusetningar eins og það leggur sig. Ráðið hefur verið skipað læknum og vísindamönnum frá læknadeildum helstu háskóla landsins. 10. júní 2025 10:33