Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. ágúst 2025 23:02 Hákon Rafn í öðrum af leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. John Walton/Getty Images Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson gæti staðið vaktina í marki Brentford þegar enska úrvalsdeildin í fótbolta fer af stað um næstu helgi.
Eftir að taka þátt í tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, og aðeins fimm allt í allt, gæti farið svo að íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn muni byrja inn á þegar komandi tímabil fer af stað. Mark Flekken, aðalmarkvörður Brentford á síðustu leiktíð, var fyrr í sumar seldur til Bayer Leverkusen. Í hans stað kom varaskeifan Caoimhin Kelleher frá Liverpool. Eftir að landsliðsmarkverðir Íslands og Írlands höfðu deilt mínútum bróðurlega á milli sín í fyrsta leik Brentford á undirbúningstímabilinu þá lék hinn 26 ára gamli Kelleher leikinn þar á eftir frá upphafi til enda. Í 2-2 jafntefli við þýska liðið Borussia Mönchengladbach var það hins vegar Hákon Rafn sem stóð vaktina frá upphafi til enda. Kelleher var ekki í leikmannahópi Brentford þann daginn þar sem hann hafði meiðst á æfingu. Þó svo að Brentford haldi í vonina að Kelleher verði klár gegn Nottingham Forest á sunnudaginn kemur þá gæti farið svo að Hákon Rafn spili þann leik nái sá írski sér ekki í tæka tíð. Það verður þó ekki sagt að Hákon Rafn hafi gripið gæsina. Gestirnir frá Þýskalandi áttu tvö skot í leiknum á markið og bæði enduðu í netinu. Þeir sköpuðu sér jafnframt aðeins færi upp á 1.38 xG. Tölfræðisíðan Flashscore gaf honum 5.9 í einkunn. Á Sofascore fékk Hákon Rafn 6.1 í einkunn fyrir frammistöðu sína. Hákon Rafn hefur spilað 20 A-landsleiki.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira