Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. júlí 2025 15:27 Saga Garðarsdóttir og Sverrir Guðnason fara með aðalhlutverk í myndinni. Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar verður frumsýnd á Íslandi 14. ágúst næstkomandi. Um er að ræða ljúfsára skilnaðarmynd, með Sögu Garðarsdóttur og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, sem fylgir eftir fjölskyldu yfir fjórar árstíðir.
Myndin heitir Ástin sem eftir er og fylgir fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga sín fyrstu skref í átt að skilnaði; fylgst er með hversdagslífi fjölskyldunnar yfir fjórar árstíðir. Áhorfendur fylgjast með fjölskyldunni ganga í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla breytt sambönd innan hennar. Hér fyrir neðan má sjá senu úr myndinni þar sem persónur Sögu og Sverris ræða saman síðla kvölds og lýkur með óvæntu tilboði í bílnum: Ástin sem eftir er var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í maí. Var það í þriðja sinn sem verk eftir Hlyn var valið til sýninga á hátíðinni, áður höfðu Volaða land og Hvítur, hvítur dagur verið sýndar á hátíðinni. Aftur á móti er Ástin sem eftirer fyrsta íslenska kvikmyndin sem hefur verið valin í Premiere-flokk Cannes-hátíðarinnar. Saga Garðarsdóttir vakti mikla athygli á rauða dreglinum á Cannes-hátíðinni í maí og ræddi Vísir við hana um dvölina í Cannes, gullhamra Bill Murray og reynsluna af því að leika í myndinni. Auk Sögu og Sverris fara Ingvar E. Sigurðsson, Ída Mekkin Hlynsdóttir og tvíburabræðurnir Þorgils og Grímur Hlynssynir með hlutverk í myndinni.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndahátíðin í Cannes Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Fleiri fréttir Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Sjá meira