Neytendur

Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Bílnum var lagt á gjaldsvæði P1 í miðborginni í um fimmtán mínútur. 
Bílnum var lagt á gjaldsvæði P1 í miðborginni í um fimmtán mínútur.  Vísir/Vilhelm

Kona segir farir sínar ekki sléttar af bílastæðafyrirtækinu Parka, sem rukkaði hana 48 þúsund krónur á dögunum fyrir bílastæði. Sonur hennar hafði þá skroppið inn í búð í miðborginni, gleymt að skrá sig úr bílastæðinu að búðarferð lokinni og uppgötvað mistökin tveimur dögum síðar.

Ásdís Bjarnadóttir rekur söguna í samtali við fréttastofu. Hún segir son sinn hafa lagt í um fimmtán mínútur fyrir utan Extra á Barónsstíg á mánudaginn, á gjaldsvæði P1, og skráð sig í bílastæði á Parka appinu, þar sem kreditkort Ásdísar var tengt. 

Í gær, tveimur dögum síðar, hafi hann gert það sama en uppgötvað að hann hefði ekki skráð sig úr stæðinu í fyrra skiptið. Þá hafi hann skráð sig úr því.

„Og þá kemur þessi reikningur frá Parka upp á 48,112 krónur, sem eru bara teknar af kreditkortinu mínu. Fyrir fjörutíu og átta klukkustundir,“ segir Ásdís í samtali við fréttastofu. 

Erfitt að ná sambandi

Hún hafi hringt í Parka en það hafi tekið dágóðan tíma og margar tilraunir að ná sambandi við fyrirtækið. Þegar hún fékk loksins svar hafi hún beðið um að fá færsluna leiðrétta en sagt að senda tölvupóst. Í svari Parka við tölvupósti hennar, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir að Parka hafi ekki leyfi til þess að endurgreiða mistök sem varða gjaldsvæði P1-P4. 

Þá er hún spurð hvort hún geti með einhverju móti sannað hvenær ekið var úr bílastæðinu, bíllinn náist ekki á mynd. Hún fái peninginn því einungis endurgreiddan nái hún með einhverju móti að sanna hvenær bílnum var ekið af staðnum. 

„Ég hef alveg lent í því að gleyma að tékka mig út af stæði og þá fæ ég í lok dags reikning um að ég sé núna að tékka mig út. Þá er reikningurinn kannski upp á 1600 krónur eða eitthvað. Þannig ætti það að virka,“ segir Ásdís. 

Hún hafði samband við Neytendasamtökin vegna málsins, sem hún segir hafa tekið málið til skoðunar. 

Sönnunarbyrðin á fyrirtækinu

Breki Karlsson formaður neytendasamtakanna segir samtökin hafa fengið þó nokkur erindi frá fólki sem hafi gleymt að skrá sig úr bílastæði og verið rukkað fúlgur fjár fyrir. Hann segir bagalegt fyrir neytendur að þurfa að sanna sakleysi sitt í málum sem þessu, þar sem sönnunarbyrðin sé í raun öfug.

„Það ætti náttúrlega að vera einhver sjálfvirkni hjá þessum fyrirtækjum. Það er þannig núna að þú þarft að velja það sérstaklega ef þú vilt vera minntur á að þú sért enn skráður í stæðið, en þessi fyrirtæki eiga að sjá sóma sinn í að tilkynna fólki svona, til dæmis á klukkutímafresti,“ segir Breki í samtali við fréttastofu.

„Í svona tilfellum hvetjum við fyrirtækin til að gera það sem er rétt, sem er að fella niður kröfur sem eru augljóslega ekki á rökum reistar. En almennt í þeim tilfellum þar sem bílastæðafyrirtæki biðja um sönnun fyrir því að farið hafi verið út af stæðinu þá höfum við bent fólki á að það er bílastæðafyrirtækisins að sanna að þú hafir verið á svæðinu.“

Tíu til fimmtán erindi á viku

Breki segir að Neytendasamtökunum berist tíu til fimmtán kvartanir á viku tengdar starfsemi bílastæðafyrirtækja. Þeim hafi fjölgað undanfarnar vikur eftir að bílastæðamál voru til umfjöllunar í fjölmiðlum. 

Þá segir hann algengt að kvartanir snúist jafnframt um að erfitt sé að ná sambandi við bílastæðafyrirtækin, líkt og Ásdís lýsir í samtali við fréttastofu. Í erindunum sé því einnig lýst að þegar neytendur ná loksins sambandi við fyrirtækin til að fá bílastæðagjöld leiðrétt sé komið fram við þá eins og glæpamenn. 

„Að lágmarki 99 prósent þeirra sem leita til Neytendasamtakanna er heiðarlegt fólk sem vill greiða það sem því ber en sættir sig ekki við að greiða ósanngjarna kröfu eða ósanngjörn innheimtugjöld.“

Sem fyrr kallar hann eftir lögum eða reglugerð til að koma böndum á þau fjölmörgu vandamál sem ríkja í bílastæðasenunni. Hann segir að kröfur frá bílastæðafyrirtækjum sem Neytendasamtökin hafa haft til skoðunar myndu aldrei halda vatni fyrir dómi eða kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.

„Þetta sýnir svart á hvítu í hvers konar ógöngur við erum komin með þessi bílastæðamál.“


Tengdar fréttir

Fleiri bílastæða­fyrir­tæki til skoðunar hjá Neyt­enda­stofu

Neytendastofa hefur enn til skoðunar upplýsingagjöf bílastæðafyrirtækja um gjaldtöku. Neytendastofa sektaði í gær fjögur fyrirtæki sem innheimta gjöld fyrir notkun bílastæða. Upplýsingagjöf og viðskiptahættir fyrirtækjanna voru ekki talin í samræmi við lög og hæsta sektin nam einni milljón króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×