Innlent

Reykja­nes­braut verður öll orðin tvö­föld fyrir veturinn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ágúst Jakob Ólafsson er verkstjóri ÍAV við Reykjanesbraut.
Ágúst Jakob Ólafsson er verkstjóri ÍAV við Reykjanesbraut. Lýður Valberg Sveinsson

Breikkun Reykjanesbrautar um Straumsvík og Hvassahraun er á undan áætlun og stefnir í að búið verði að tvöfalda hana alla fyrir veturinn. Vegfarendur fá smjörþefinn á næstu dögum þegar umferð verður í fyrsta sinn hleypt á nýja akreinar.

Í fréttum Sýnar var vinnusvæðið heimsótt og rætt við Ágúst Jakob Ólafsson, verkstjóra ÍAV við Reykjanesbraut. Tvö ár frá því Íslenskir aðalverktakar hófu breikkun þessa nærri sex kílómetra kafla, þess síðasta sem eftir er að tvöfalda milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur, og felst mikil samgöngubót í verkinu.

„Já, þetta verður mikill munur. Það verður kominn 2+2 alla leið inn í Hafnarfjörð og alveg á Fitjarnar. Það verður betri veglýsing á báðar akreinar. Þetta verður mun betra en fyrri áfangar,“ segir Ágúst.

Starfsmenn Colas lögðu kalt malbik í dag sem neðsta lag undir heitt malbik.Lýður Valberg Sveinsson

Og malbikið verður þykkara en menn hafa átt að venjast hérlendis en malbikunarflokkur frá Colas var í dag að leggja út kalt malbik, svokallað kaldbik.

„Sem er sjö sentímetra lag sem er sett fyrst undir. Síðan koma tvö heit malbikslög ofan á það. Þannig að heildarþykktin á malbikinu er sautján sentímetrar hérna á stofnbrautinni.

Þetta er til að auka burðinn og lengja endingartíma vegarins. Svo hann verði sterkari og betri og jafnari heldur en hefur verið áður,“ segir verkstjórinn.

Verið er að ganga frá vegriðum og búið að mála línur á hluta vegarins. Ágúst segir verkið hafa gengið vel en verktakarnir kvarta helst undan hraðakstri ökumanna meðfram verkstað.

Malbik er komið á stóran hluta nýrrar akreinar Reykjanesbrautar.Lýður Valberg Sveinsson

En hvenær fá vegfarendur að reyna nýju kaflana?

„Það gerist núna hugsanlega seinnipartinn í þessari viku eða þá í byrjun næstu viku. Þá hleypum við inná.

Við eigum eftir að færa umferðina hérna svona tvisvar til þrisvar sinnum í sumar. Við þurfum að rjúfa gömlu brautina á tveimur stöðum.“

Ágúst segir stefnt að því að ljúka malbikun fyrir lok næsta mánaðar. Áður var búið að ljúka brúasmíði.

Upphaflega var gert ráð fyrir verklokum um mitt næsta ár en núna þykir ljóst að þau verða mun fyrr. Horfur eru á að stóru tímamótin verði jafnvel vel fyrir veturinn; þegar vegfarendur geta ekið Reykjanesbrautina alla tvöfalda.

„Við stefnum að því að leyfa mönnum að keyra hérna á tvöföldu fyrir veturinn, það er markmið,“ segir verkstjóri ÍAV í frétt Sýnar, sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

Samið við Aðalverktaka um breikkun Reykjanesbrautar

Fulltrúar Vegagerðarinnar og Íslenskra aðalverktaka skrifuðu í gær undir verksamning um tvöföldun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Aðalverktakar áttu lægsta tilboð þegar þau voru opnuð 5. apríl síðastliðinn, buðu tæpa fjóra milljarða króna í verkið, sem var meira en einum milljarði undir áætluðum verktakakostnaði.

Spara milljarð á lægsta boði í breikkun Reykjanesbrautar

Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð í breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns, upp á nærri fjóra milljarða króna. Tilboðið reyndist meira en einum milljarði króna undir kostnaðaráætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×