Leik lokið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 29. júní 2025 18:31 Valur - KR Besta deild karla Sumar 2025 vísir/Diego Gömlu stórveldin KR og FH mættust í afar áhugaverðum slag í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld en KR-ingar þurftu að svara fyrir sig eftir 6-1 skell gegn Val í síðustu umferð. Það blés ekki sérlega byrlega fyrir KR þegar FH komst í 1-2 á 63. mínútu en Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnaði metin skömmu síðar og tryggði KR-ingum svo öll stigin þrjú í uppbótartíma. Nánari umfjöllun og viðtöl á Vísi síðar í kvöld. Besta deild karla KR FH