Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Ragnar Heiðar Sigtryggsson skrifar 29. júní 2025 16:16 Afturelding - ÍA Besta deild karla sumar 2025 vísir/Diego Skagamenn sóttu spútniklið Vestra heim í Bestu deildinni í fótbolta í dag, í fyrsta leik ÍA undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar sem á dögunum var ráðinn í stað Jóns Þórs Haukssonar. Uppskeran var fyrsti sigur liðsins síðan 29. maí. Leikurinn fór hægt af stað og fyrri hálfleikur var tíðindalítill, þó bæði lið kæmust í nokkur hálffæri. Heimamenn í Vestra reyndu að sækja með Montiel manna sprækastan en Skagamenn vörðust vel og héldu hreinu. Það var svo á 53. mínútu sem Ísak Máni Guðjónsson kom ÍA yfir með skoti sem fór af varnarmanni og endaði í netinu. Markið kveikti í gestunum sem sýndu meiri festu og einbeitingu eftir það. Ellefu mínútum síðar, á 66. mínútu, bætti Ómar Björn Stefánsson við öðru marki eftir að Viktor Jónsson skallaði boltann inn fyrir Ómar fylgdi vel eftir og kom boltanum í netið. Þrátt fyrir tilraunir Vestra til að svara, náðu þeir ekki að brjóta niður skipulagða vörn ÍA og úr varð annað tap í röð fyrir heimamenn sem einnig lutu í lægra haldi fyrir FH í síðustu umferð. Nýr þjálfari ÍA, Lárus Orri Sigurðsson, hefur nú fengið drauma byrjun í fyrsta leik og þarf að sjá til þess að sínir menn haldi áfram á sömu nótum. Þrjú mikilvæg stig á skagann. Atvik leiksins Það var ekki mikið að gerast þegar ÍA skorar fyrsta markið sitt, gefur þeim vind í seglin til að skora annað stuttu seinna og horfa aldrei til baka eftir það. Stjörnur og skúrkar Ísak Máni var sprækur í dag og skoraði fyrsta mark leiksins. Fær „MVP“ í dag. Davíð Smári neitaði að koma í viðtal eftir leik og fær því skúrk dagsins. Dómararnir Þrátt fyrir óánægju frá heimamönnum með störf hans í dag, þá gerði hann enginn stór mistök og var bara flottur í dag. Stemming og umgjörð Það vantar aldrei fjörið á Kerecis og stuðningsmenn Vestra, sem og ÍA, létu heyra vel í sér í dag. Viðtöl Lárus Orri: „Frábær tilfinning og kærkominn sigur“ Lárus Orri þarf að bíða aðeins eftir því að ljósmyndari Vísis nái mynd af honum á hliðarlínunnivísir / sigurjón Lárusi Orra var létt eftir leik sinna manna í dag gegn Vestra á Kerecisvellinum, en var þetta fyrsti leikur Lárusar eftir að hann tók við starfi þjálfara ÍA. „Strákarnir lögðu sig hart fram og börðust fyrir þessu í dag” sagði Lárus um frammistöðu sinna manna í dag sem lagði áherslu á að menn fari að vinna meira saman, fyrir hvorn annan og tala meira saman.“ „Málið er að upp á Skaga að þar er ekki mikið að, það er frábært starf unnið þarna, góðir leikmenn og aðstaðan frábær. Jón Þór gert frábæra hluti en tímabilið verið furðulegt fyrir ÍA. Hinsvegar erum við bara búnir að vinna einn leik.“ - Sagði Lárus sem veit að hann á mikið starf framundan eftir og ætlar sér að ná í sigur gegn Fram í næsta leik. Davíð Smári, þjálfari Vestra, neitaði að tjá sig eftir leik. Besta deild karla Vestri ÍA