Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2025 19:16 Woody Johnson fagnar hér á hliðarlínunni í einum leikja New York Jets í NFL deildinni. Getty/Kevin Sabitus Woody Johnson, eigandi NFL félagsins New York Jets, hefur samþykkt að eyða 190 milljónum punda, tæpum 32 milljörðum íslenskra króna, í að kaupa stóran hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu.
Johnson eignast ekki aðeins 43 prósent hlut í ensku bikarmeisturunum heldur mun hann væntanlega tryggja það í leiðinni að Crystal Palace fái keppnisrétt í Evrópudeildinni á komandi leiktíð. ESPN segir frá. Johnson kaupir hlut bandaríska viðskiptajöfursins John Textor. Textor á einnig stóran hlut í franska félaginu Lyon. Lyon keppir einnig í Evrópudeildinni á næsta tímabili og sami eigandi má ekki vera með tvö lið í sömu Evrópukeppni. Forráðamenn Crystal Palace hafa verið í viðræðum við UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, síðustu vikur og nú virðist lausnin vera fundin. Palace vann sér sæti í Evrópukeppni í fyrsta sinn með því að vinna Manchester City í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í vor. Johnson er 78 ára gamall og var sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi frá 2017 til 2021. Hann reyndi á sínum tíma að kaupa Chelsea af Roman Abramovich en tókst ekki. Hann hafði áður lýst því yfir að hann væri stuðningsmaður Chelsea og þarf því núna að sýna ást sína á Palace í verki. Johnson er afabarn Robert Wood Johnson I, stofnanda Johnson & Johnson lyfjafyrirtækisins og auður hans kemur þaðan.
Enski boltinn NFL Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Sjá meira