Bætir í úrkomu í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 19. júní 2025 07:17 Hiti verður yfirleitt á bilinu sjö til fimmtán stig. Visir/Anton Brink Smálægð nálgast nú landið úr suðvestri og má reikna með fremur hægri suðlægri átt í dag og víða skýjuðu veðri með stöku skúrum, einkum síðdegis.
Á vef Veðurstofunnar segir að í kvöld komi úrkomusvæði frá lægðinni inn á sunnanvert landið og heldur til norðurs. Mun þá bæta víða í úrkomu. Hiti verður yfirleitt á bilinu sjö til fimmtán stig þar sem mildast verður austantil. „Á morgun er áfram útlit fyrir fremur hægan vind og víða skýjað með köflum og úrkomulítið, en annað kvöld gengur í suðaustan 5-10 m/s vestast á landinu með dálítilli vætu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálitlar skúrir á víð og dreif. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast suðaustantil. Suðaustan 5-10 vestast á landinu um kvöldið. Á laugardag (sumarsólstöður): Austlæg átt 5-10, en 10-15 með suðurströndinni. Rigning með köflum á sunnanverðu landinu, en yfirleitt þurrt annars staðar. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á sunnudag: Norðaustan 8-13 norðantil, en hægari syðra. Dálítil rigning eða súld, en úrkomulítið vestanlands. Hiti frá 7 stigum við norðausturströndina, upp í 16 stig suðvestanlands. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt, skýjað og víða dálítil væta með köflum. Hiti 7 til 14 stig, svalast við austurströndina. Á miðvikudag: Útlit fyrir vaxandi austanátt með rigningu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Sjá meira