Ronaldo skaut Portúgal í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2025 21:00 Cristiano Ronaldo fagnar sigurmarki sínu á Allianz Arena í kvöld. Getty/Lars Baron Portúgal vann 2-1 sigur á Þýskalandi í München í kvöld í fyrri undanúrslitaleik Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta. Það var enginn hann er hinn fertugi Cristiano Ronaldo sem skoraði sigurmarkið en Portúgalar komu til baka eftir að hafa lent 1-0 undir. Portugal mætir annað hvort Spáni eða Frakklandi í úrslitaleiknum en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram annað kvöld. Portúgal vann fyrstu Þjóðadeildina 2019 og getur því líka orðið fyrsta þjóðin til að vinna hana tvisvar. Frakkar unnu Þjóðadeildina árið 2021 en Spánverjar eru ríkjandi meistarar frá 2023. Þýska liðið var á heimavelli og leit betur út fram eftir leik. Ekkert mark kom í fyrri hálfleiknum. Maðurinn sem er á öllum líkindum á leið til Liverpool, Florian Wirtz, kom þýska liðinu aftur á móti í 1-0 eftir aðeins þriggja mínútna leik í seinni hálfleik. Wirtz fór þá í þríhyrningaspil við fyrirliðann Joshua Kimmich og Kimmich lyfti boltann yfir vörnina og inn í teiginn. Wirtz hélt hlaupinu áfram, var réttstæður og skallaði boltann laglega í markið. Þjóðverjar fögnuðu vel á pöllunum en Portúgalar áttu ása upp í erminni. Roberto Martinez, þjálfari Portúgala, gerði þrjár breytingar á liði sínu á 58. mínútu og það heppnaðist afar vel. Portúgalska liðið sneri við leiknum með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla. Varamaðurinn Chico Conceicao skoraði fyrra markið eftir einstaklingsframtak og frábær skot fyrir utan teig. Conceicao var frábær eftir að hann kom inn á völlinn og það verður erfitt að geyma hann á bekknum í úrslitaleiknum. Fimm mínútum síðar átti Bruno Fernandes flotta sendingu inn fyrir vörnina á Nuno Mendes. Mendes renndi boltanum til hliðar á Cristiano Ronaldo sem skoraði auðveldlega. Mark Ronaldo reyndist vera sigurmarkið í leiknum en þetta var hans 137. mark fyrir portúgalska landsliðið sem er bæting á heimsmetinu hans. Þjóðadeild karla í fótbolta