Faðir bræðranna sem létust segir úrræði gegn fíkn rjúkandi rúst Jakob Bjarnar skrifar 2. júní 2025 13:35 Ásgeir Gíslason upplifði það að missa syni sína tvo úr ofskömmtun ópíóðalyfja. Hann vonaðist til að lát þeirra myndi leiða til einhvers góðs en honum sýnist vandinn vaxinn okkur yfir höfuð. Synir Ásgeirs Gíslasonar skipstjóra dóu með 12 klukkustunda millibili í ágúst á síðasta ári. Bræðurnir létust báðir af ofskömmtun ópíóðalyfja en ekkert bendir til annars en að um slys, en ekki viljaverk, hafi verið að ræða.
Þeir Jón Kjartan, sem fæddur var árið 1990, og Sindri Geir fæddur 1997, bjuggu saman í íbúð í Kópavoginum en það var Sindri Geir sem kom að bróður sínum látnum að morgni hins 9. ágúst síðastliðinn. Eftir að lögregla og aðrir viðbragðsaðilar höfðu gengið frá vettvangi andlátsins var Sindri Geir, að eigin ósk, einn eftir í íbúðinni. Þegar svo ekki náðist í hann síðar um daginn var farið að vitja hans og kom þá í ljós að hann var líka látinn. Ásgeir var í viðtali hjá Frosta Logasyni á hlaðvarpsveitunni Brotkas.is og hann segir af þessari átakanlegu reynslu. Þá sagði hann að krufning hefði leitt í ljós að magnið hefði ekki verið svo mikið, sem benti til að ekki hafi verið um viljaverk að ræða af bræðranna hálfu. Hvorugs þeirra. „Það er ekkert hægt að lýsa þeirri tilfinningu, hvernig það er að fá slík tíðindi, og kannski er best að það sé ekki hægt, því í rauninni á það ekki að þurfa að gerast að neinn þurfi að upplifa það.“ Þetta segir Ásgeir um hvernig það hafi verið fyrir sig að fá þær fregnir, fyrst að Jón Kjartan hefði látist og 12 klukkustundum síðar að heyra að Sindri Geir væri einnig farinn sömu leið. Skipinu siglt beina leið í höfn „Maður veit ekkert við hvern maður á að tala. Þegar maður er búinn að lenda í því oftar enn einu sinni að þurfa að hugga prest, að þá getur maður ekki ætlast til þess að neinn sem ekki hefur upplifað þetta skilji mann.“ Ásgeir var staddur á Barentshafi, á fyrsta degi rækjuveiða, þegar hann fékk fyrst símtalið um að Jón Kjartan væri látinn. Voru þá þegar gerðar ráðstafanir til að hann yrði sóttur af öðru skipi sem átti að koma honum í land þaðan sem hann myndi svo fljúga með fyrstu vél heim til Íslands. Sindri Geir og Jón Kjartan, bræðurnir sem báðir létust úr ofskömmtun. Faðir þeirra segir að þeir sem ekki hafi upplifað annað eins áfall og það eigi erfitt með að skilja sárin sem það skilur eftir sig.aðsend Þegar seinna símtalið kom og honum tilkynnt að hinn sonur hans hefði einnig látist var hins vegar ákveðið að hífa upp veiðarfærin og sigla skipinu beinustu leið í höfn. Ásgeir og fjölskylda hans hafa verið að vonast til að þessi voveiflegi atburður mundi leiða til einhverrar alvöru umræðu um þann faraldur ópíóðafíknar, og dauðsfalla tengdum honum, sem riðið hefur yfir íslenskt samfélag á undanförnum árum. Þau hafa vonast til að gripið yrði til einhverra aðgerða til að sporna við þeirri dapurlegu þróun sem leitt hafi svo marga til dauða og skilið óteljandi fjölskyldur eftir í sárum. Er orðinn vondaufur um að fráfall bræðranna leiði til góðs „Ef eitthvað á að geta huggað mann þá ætti það að vera að þetta leiði til einhvers góðs og bjargi öðrum lífum. Það er of seint að bjarga strákunum mínum. Það eru ekki við sem eru fórnarlömbin í þessu, það eru þeir sem dóu og þeir sem eru úti í samfélaginu og eiga eftir að lenda í því sama. Þar eru hin raunverulegu fórnarlömb.“ Bræðurnir höfðu sjálfir upplifað mikinn missi en árið 2020 gerðist það að móðir þeir lést, einnig úr lyfjaeitrun. Ásgeir getur ekki leynt þeirri skoðun sinni að hann telji læknastéttina á Íslandi bera töluverða ábyrgð á þeim ógöngum sem neysla ópíóða hefur leitt af sér. „Það er svo sem ekkert leyndarmál að mamma þeirra hafði aðgang að lækni sem skrifaði bara upp á það sem hún bað um, eða svona nánast. Það voru þarna lyf sem hann hafði ekkert að gera með, eða sem heimilislæknir hafði ekkert leyfi til að gefa út. Sá læknir var aldrei dregin til neinnar ábyrgðar en hætti störfum skömmu síðar vegna aldurs.“ Móðurmissirinn reyndist þeim bræðrum erfiður Móðurmissirinn var þeim bræðrum eðlilega mikið áfall. Að sögn Ásgeirs reyndist þeim afar erfitt að vinna úr því. Vill hann meina að úrræðin sem hafi verið í boði hafi í raun ekki gert þeim neitt gagn. „Það var Jón Kjartan sem kom að henni og hann komst í raun aldrei almennilega yfir það. En hann komst samt fljótlega upp úr því að hjá einhverju teymi hjá Kópavogsbæ. Hann fékk félagslega íbúð og fór á endurhæfingalífeyri. En af einhverjum ótrúlegum ástæðum, þetta mörgum árum seinna, þá er hann ennþá á sama stað. Það var eitthvað í hjálparstarfinu eða þeirri meðferð sem ekki dugði honum.“ Þingmaðurinn Sigmar Guðmundsson vakti fyrst athygli á þessu máli með áhrifaríkum pistli sem hann skrifaði í samráði við Ásgeir og birti á Vísi í aðdraganda kosninga síðasta haust. Eftir að flokkur hans, Viðreisn, komst svo í ríkisstjórn í desember var tilkynnt í stjórnarsáttmála að engar sumarlokanir yrðu á meðferðarstofnunum eins og Stuðlum og Vík. Eftirmeðferðarúrræðin eru í molum Ásgeir segir þetta jákvæðar aðgerðir en telur þær hins vegar engan veginn duga til að sporna við þessu mikla og djúpstæða vandamáli. „Eftirmeðferðarúrræðin eru í molum má segja og eftirfylgnin alltof einhæf. Mér er reyndar sagt að komin sé í gang einhver vinna við að flokka þessa aðstoð betur eftir þörfum einstaklinga en til þess þurfti erlendan aðila til að koma og gera úttekt á málunum. En þetta er bara á byrjunarstigi og auðvitað ekkert komið í gang ennþá.“ Báðir drengirnir hans Ásgeirs höfðu verið að berjast við að ná tökum á fíkn sinni. Jón Kjartan hafði farið í meðferð í desember 2023 en vegna plássleysis var bið eftir áframhaldandi eftirmeðferð sem varð til þess að hann náði ekki að halda sér edrú nema fram á vor. Sindri Geir hafði líka verið að reyna að ná bata. Hann hafði lagt inn innlagnarbeiðni á Vog en þar var átta mánaða bið. Ásgeir segist hafa heimildir fyrir því að á sama tíma hafi að minnsta kosti 10 rúm ekki verið í notkun á stofnuninni. Vegna fjárskorts. „Svo er það með þessi ónýttu pláss, af því maður hefur mikið velt þessu fyrir sér eftir þetta, af hverju er ekki bara hægt að taka upp tvöfalt kerfi þar sem fólk getur komið inn og borgað það sem þetta kostar? Gera það samhliða. Með því væri hægt að auka við hversu mörg rúm er hægt að hafa þarna.“ Vandinn er kerfislægur Ásgeir segir engan vafa á því leika að fjöldi fjölskyldna væru tilbúnar til þess, jafnvel að slá saman, til að bjarga fólkinu sínu. „Þetta myndi gagnast bæði þeim sem hafa efni á því og þeim sem hafa það ekki. Því að sjálfsögðu myndi þetta stytta biðlistana. Það er engin glóra í því að þeir styttist bara með því að fólk deyi á þeim.“ Ásgeir vonast til þess að gerðar verði dýpri greiningar á orsökum þess að svo margir villist af leið og verði fíknisjúkdómnum að bráð. Hann telur vandann kerfislægan og að hann eigi að einhverju leyti rætur sínar í uppeldistofnunum samfélagsins. Grafreitur bræðranna og móður þeirra. „Það eru sjálfsagt nokkur atriði sem spila inn í. En einhverstaðar er eitthvað að. Hugsanlega í menntakerfinu eða öðru uppeldi. Við erum náttúrulega búin að setja uppeldisábyrgðina yfir á stofnanir sem að hafa greinilega ekki ráðið við það. Það er sárt að segja, en það er eitthvað sem veldur því að þau eru bara ekki tilbúin þegar þau koma út í lífið. Þau hafa aldrei þurft að takast á við neitt. Við sjáum bara hvernig árangurinn er í náminu samanborðið við önnur lönd. Hann bara daprast og daprast.“ Eitthvað verulega bogið við uppeldisstefnuna sem rekin er Ásgeir nefnir sem dæmi að núna sé loks verið að setja aftur á samræmd próf í skólakerfinu. Að stöðugt hafi verið að draga úr vægi einkunna og að þannig hafi krakkarnir í raun lært að þau þurfi aldrei að klára neitt. Það megi alltaf bara vinna hlutina upp síðar á næsta stigi. Þetta telur Ásgeir að hafi síður en svo haft góð áhrif á æsku landsins. „Það er ekki byggður upp neinn metnaður eða sett nein markmið. Bara flýtur meðan ekki sekkur. Börnum er ekkert kennt um eigin ábyrgð, bara réttindi. Það er ekkert eðlilegt við það að fólk hrynji niður í það sem kallað er kulnun. Út af hverju er það? Það er eitthvað þarna á bakvið sem ekki hefur verið gert rétt.“ Ásgeir viðurkennir að það eru engar einfaldar lausnir í þessu. En telur að þjóðfélagið þurfi einfaldlega að setja sér langtíma markmið sem allir verði að taka saman höndum um. Rétt eins og þegar byggðir eru upp varnargarðar þegar hraunrennsli ógnar byggðum eða þegar farið er í átök vegna banaslysa í umferðinni. „Það er allt í skötulíki sem er gert hérna. Á sama tíma og strákarnir deyja að þá var farið stað með söfnun til að bjarga erlendu fólki til landsins frá útlöndum. Ef við þurfum að forgangsraða þá er þetta bara ekki rétt að mínu mati.“
Fíkn Meðferðarheimili Hlaðvörp Mest lesið Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Innlent Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Innlent Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Innlent Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Innlent Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Innlent Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Veður Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Erlent Alda María nýr formaður Heimdallar Innlent Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Alda María nýr formaður Heimdallar Um 160 fatlaðir starfsmenn hjá Ás styrktarfélagi í Kópavogi Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Forstjóri Útlendingastofnunar vildi skýr svör frá Víði um umsókn Oscars Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Lömb á kafi, útlendingaumræðan og Brynjar Karl í beinni Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni „Ættum frekar að láta borgina skrifa undir mannréttindasáttmála“ „Þarna er gripið fram fyrir hendurnar á Alþingi“ Gæsluvarðhald framlengt aftur Alveg gáttuð á framgöngu Víðis sem hafi brotið trúnað Landris mælist áfram í Svartsengi Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar Hefur metnað til að leiða flokkinn þrátt fyrir slæmt gengi „Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“ Reyna að bjarga 100 kindum og lömbum á kafi í snjó Víðir um mál Oscars: „Réttur okkar þingmanna að hafa skoðun“ Notkun rafbyssa í samræmi við markmið Varð undir bílhræi ofan í járntætara og fær 150 milljónir „Auddi, Steindi og Egill voru í markaðsmálum“ Sakar Víði um pólitísk afskipti af máli Oscars Þurfa að gefa út ákæru á morgun ef gæsluvarðhaldið á að vera lengra Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Rafbyssu beitt þrisvar sinnum á fyrsta ársfjórðungi Nóttin róleg hjá björgunarsveitum Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu Sjá meira