Tíska og hönnun

Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir ó­vænta trú­lofun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sunneva Einarsdóttir er viðmælandi í Tískutali.
Sunneva Einarsdóttir er viðmælandi í Tískutali. Vísir/Anton Brink

„Hann gaf til kynna að ég myndi vilja vera í flottasta kjólnum sem ég tók með mér út. Ég var nokkuð ánægð með þetta lúkk,“ segir brosmild og nýtrúlofuð Sunneva Einarsdóttir um fatavalið þegar hennar heittelskaði Benedikt Bjarnason bað um hönd hennar í Mexíkó. Sunneva er viðmælandi í Tískutali þar sem hún veitir innsýn í fataskáp sinn. 

Sunneva Einarsdóttir, fædd 1996, er líklega einn þekktasti áhrifavaldur landsins og sannkölluð ofurskvísa. Hún er menntaður viðskiptafræðingur, heldur uppi hlaðvarpinu Teboðið og er í raunveruleikaseríunni og vinkonuhópnum LXS. 

Tíska hefur alla tíð verið stór hluti af hennar lífi og tjáningu en hún er óhrædd við að leika sér með liti og flippaða og skemmtilega fylgihluti.

Hér má sjá viðtalið við Sunnevu í heild sinni en í byrjun þáttar var púlsinn tekinn á heitustu sólgleraugnatískunni hjá Eyesland: 

Bleikt sumar en í dvala á veturna

Sunneva hefur mjög gaman að tjáningarformi tískunnar og nýtur sín hvað mest á sumrin. 

„Svo fer ég í smá dvala á veturna,“ segir Sunneva kímin og bætir við: „Ég er smá kamelljón og fer alla leið með þær víbrur sem eru í gangi hverju sinni. Sérstaklega þegar ég er að ferðast, þá finnst mér ótrúlega gaman að pakka flíkum sem passa vel við umhverfið. Ég elska þema.“

Sem sjálfstætt starfandi hefur hún líka frelsi til þess að klæða sig eins og hún vill hverju sinni. 

„Ég mæti oft á fundi í öllu bleiku, bleikum galla með bleika derhúfu og ég hugsa vá, ég er eins og barn, ég á ekki að vera inni í einhverju fyrirtæki,“ segir Sunneva og hlær. 

Tímalaus trúlofunarkjóll

Sunneva og Benedikt unnusti hennar fóru til Mexíkó fyrr á árinu ásamt vinapari. Þau fóru út sem kærustupar og komu heim trúlofuð. Sunneva segir að maðurinn hennar þekki hana vel en hann ýjaði að því að hún myndi vilja fara í fínasta kjólinn sem hún tók með kvöldið sem hann bað hennar. 

„Ég fór í pastelgrænan síðkjól sem er mjög tímalaus. Ég var bara nokkuð ánægð með þetta lúkk,“ segir hún brosandi. 

Hún óhjákvæmilega fór að velta fyrir sér hvað væri í vændum þetta kvöld en þó grunaði hana ekki að hann væri að fara að biðja hennar.

Mjög lítil í sér sem barn

Áhugi á klæðaburði hefur fylgt Sunnevu frá blautu barnsbeini. 

„Ég hef ekkert alltaf verið með flottasta stílinn og ég lít ekki á sjálfa mig sem eitthvað tísku icon. En frá því ég man eftir mér hef ég haft ótrúlega mikinn áhuga á að fylgjast með tískunni og klæða mig upp.“

Hún var sömuleiðis dugleg sem barn að kíkja í fataskáp móður sinnar og fá skemmtilegar flíkur að láni. 

„Ég hef alltaf haft gaman að þessu, fara í einhver fitt og taka myndir, fara í myndatökur úti í skógi eða í skemmtilegum undirgöngum.“

Ástríðan fyrir ljósmyndun fylgir henni enn í dag og nýtist vel við samfélagsmiðlavinnuna. 

„Ég var mjög lítil í mér sem barn og var mjög mikið inni í skelinni minni. Svo eftir að ég byrjaði á samfélagsmiðlum þá bara opnaðist allt, kannski aðeins of mikið jafnvel. 

Ég er að lifa drauminn sem litlu Sunnevu langaði alltaf að geta gert. Að geta unnið í kringum tísku, að taka myndir, hafa gaman, geta talað við fólk og verið opin.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.