Hnekkti dómi fyrrverandi kanslara fyrir meinsæri Kjartan Kjartansson skrifar 26. maí 2025 13:44 Sebastian Kurz sagði af sér embætti kanslara vegna spillingarmála árið 2021. Hann gæti nú mögulega átt afturkvæmt í austurrísk stjórnmál. AP/Heinz-Peter Bader Áfrýjunardómstóll í Vínarborg sýknaði Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslara Austurríkis, af ákæru um meinsæri og sneri þannig við dómi neðra dómstigs. Miklar vangaveltur eru um hvort að Kurz gæti nú átt afturkvæmt í austurrísk stjórnmál eftir að spillingarmál leiddi til afsagnar hans árið 2021.
Kurz var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundi fangelsi í fyrra fyrir að hafa borið ljúgvitni fyrir rannsóknarnefnd þingsins árið 2020. Rannsóknarnefndin rannsakaði ásakanir um spillingu í ríkisstjórn Kurz sem var sjálfur sakaður um að hafa notað opinbert fé til þess að kaupa sér hagstæða fjölmiðlaumfjöllun. Dómnum yfir Kurz var snúið við í dag. Dómstóllinn staðfesti hins vegar dóm yfir skrifstofustjóra fyrrverandi kanslarans, að sögn austurríska ríkismiðilsins ORF. Var vonarstjarna íhaldsmanna Kurz leiddi Þjóðarflokkinn til sigurs í kosningum árið 2017 og 2019 og var aðeins 31 árs gamall þegar hann varð kanslari í fyrsta skipti. Hann var talinn helsta vonarstjarna íhaldsmanna í Evrópu, að sögn Evrópuútgáfu blaðsins Politico. Fallið var því hátt þegar hann sagði af sér í október 2021 í skugga raðar spillingarmála. Niðurstaðan í dag er talin skipta sköpum fyrir pólitíska framtíð en mikið er rætt um hugsanlega endurkomu hans í stjórnmálin. Þjóðarflokkurinn leiðir nú þriggja flokka samsteypustjórn sem var mynduð til þess að halda jaðarhægriflokknum Frelsisflokknum frá völdum en hann vann stórsigur í kosningum í fyrra.
Austurríki Erlend sakamál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira