Enski boltinn

Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rauða spjaldið sem Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa, fékk gegn Manchester United reyndist dýrt.
Rauða spjaldið sem Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa, fékk gegn Manchester United reyndist dýrt. getty/James Gill

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta fór fram í dag. Mikil barátta var um þrjú laus sæti í Meistaradeild Evrópu.

Fylgst var með öllu því helsta sem gerðist í beinni textalýsingu á Vísi en hana má finna neðst í fréttinni. Hér fyrir neðan má svo nálgast textalýsingu frá hverjum og einum leik.

Lokaumferðin


Manchester City hélt 3. sætinu með 0-2 sigri á Fulham á Craven Cottage. Ilkay Gündogan og Erling Haaland (víti) skoruðu mörk City sem vann sjö af síðustu níu deildarleikjum sínum og gerði tvö jafntefli.

Levi Colwill fagnar með Enzo Maresca, knattspyrnustjóra Chelsea, eftir sigurinn á City Ground.getty/Robbie Jay Barratt

Chelsea lyfti sér upp í 4. sætið með 0-1 sigri á Nottingham Forest á City Ground. Levi Colwill skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks. Forest varð að gera sér 7. sætið að góðu en liðið spilar í Sambandsdeildinni á næsta tímabili.

Eftir að hafa tapað úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrir Tottenham á miðvikudaginn, 1-0, spilaði Manchester United vel gegn Aston Villa. Emiliano Martínez, markvörður gestanna, var rekinn út af undir lok fyrri hálfleiks en á 73. mínútu var mark dæmt af Morgan Rogers sem þótti afar hæpinn dómur.

United tryggði sér sigurinn með mörkum Amads Diallo og Christians Eriksen (víti). Villa komst því ekki í Meistaradeildina annað árið í röð en liðinu hefði dugað jafntefli á Old Trafford því á sama tíma tapaði Newcastle United fyrir Everton á St James' Park, 0-1. Carlos Alcaraz skoraði eina mark leiksins a 65. mínútu. Newcastle endaði í 5. sæti og endurheimti því sæti sitt í Meistaradeildinni.

Eddie Howe, stjóri Newcastle, gat leyft sér að fagna þrátt fyrir tap gegn Everton.getty/Alex Dodd

Englandsmeistarar Liverpool og bikarmeistarar Crystal Palace gerðu 1-1 jafntefli á Anfield. Ismaïla Sarr kom Palace yfir en Mohamed Salah jafnaði fyrir Liverpool með sínu 29. deildarmarki á tímabilinu.

Nýkrýndir Evrópudeildarmeistarar Tottenham náðu forystunni gegn Brighton með marki Dominics Solanke úr víti en töpuðu 1-4. Spurs endaði í 17. sæti sem er versti árangur liðsins síðan liðið féll úr efstu deild tímabilið 1976-77. Jack Hinselwood skoraði tvö mörk fyrir Brighton og Matt O'Riley (víti) og Diego Gómez sitt markið hvor. Mávarnir enduðu í 8. sæti.

Martin Ødegaard skoraði sigurmark Arsenal gegn Southampton.getty/Mark Leech

Arsenal sigraði botnlið Southampton á útivelli, 1-2. Kieran Tierney og Martin Ødegaard skoruðu mörk Arsenal sem endaði í 2. sæti. Ross Stewart skoraði mark Southampton sem fékk aðeins tólf stig.

Antonio Semenyo skoraði bæði mörk Bournemouth í 2-0 sigri á Leicester City. Kirsuberin enduðu í 9. sæti en Refirnir féllu.

West Ham United sigraði Ipswich Town, 1-3. James Ward-Prowse, Jarrod Bowen og Mohammed Kudus skoruðu mörk Hamranna en Nathan Broadhead mark nýliðanna sem féllu.

Þá gerðu Wolves og Brentford 1-1 jafntefli. Bryan Mbeumo kom Býflugunum yfir með sínu tuttugasta deildarmarki á tímabilinu en Marshall Munetsi jafnaði fyrir Úlfana.

Lokastaðan




Fleiri fréttir

Sjá meira
×