Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. maí 2025 14:02 Hlynur Bæringsson með sigurvindilinn, kampavínið og bikarinn í búningsklefanum á Sauðárkróki eftir oddaleik Tindastóls og Stjörnunnar í gær. vísir/hulda margrét Einum lengsta og magnaðasta ferli íslensks íþróttamanns lauk í gær þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari eftir sigur á Tindastóli í oddaleik á Sauðárkróki. Hlynur Bæringsson setti þar punktinn aftan við tæplega þrjátíu ára meistaraflokksferil sem fékk draumaendi í gini úlfsins.
Hlynur var í fanginu á Júlíusi Orra Ágústssyni þegar Ægir Þór Steinarsson vildi komast að. Þegar Hlynur áttaði sig á hver þetta var sem vitjaði hans brosti hann og féll svo í faðm Ægis. Faðmlagið var langt, innilegt og merkingarþrungið. Þetta var líkast því þegar Ólafur Stefánsson grét eins og ungabarn í bjarnarhrömmum Sigfúsar Sigurðssonar eftir sigur Íslands á Spáni í undanúrslitum Ólympíuleikanna 2008. Þetta eru ósviknu tilfinningarnar sem íþróttir geta kallað fram á sínum bestu stundum. Eftir 28 ár í meistaraflokki var þessu lokið, og það á besta mögulega hátt. Hlynur Bæringsson ríður út í sólsetrið sem sigurvegari. Sama hvernig leikurinn í gær hefði farið hefði hann alltaf kvatt með höfuðið hátt. En þetta var fullkominn endir á einum lengsta og magnaðasta ferli íslensks íþróttamanns. Síðan eru liðin mörg ár Já, eins og er búið að klifa margmargmargoft á undanfarna daga er Hlynur 42 ára. En þetta er staðreynd sem er alltaf jafn klikkuð, hversu oft sem hún er nefnd. Hlynur er fæddur í júlí 1982, sama ár og Rokk í Reykjavík kom út. Átta ár liðu þar til þjálfari Stjörnunnar, Baldur Þór Ragnarsson, kom í heiminn. Þegar Hlynur fæddist gat fólk ekki horft á sjónvarp á fimmtudögum og Berlínarmúrinn stóð enn keikur. Hlynur lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki á Hlíðarenda, 16. október 1997 þar sem Skallagrímur vann Val, 92-108. Hlynur, þá fimmtán ára, skoraði fjögur stig á þeim fjóru mínútum sem hann spilaði. Annarra dómara leiksins var Sigmundur Már Herbertsson sem dæmdi einmitt oddaleikinn í gær. Sumt breytist bara ekki. Hlynur og Júlíus Orri Ágústsson sem reyndist Stjörnuliðinu heldur betur mikilvægur í gær.vísir/hulda margrét Árið 1997 var Spice Girls á hátindi ferilsins, Titanic var vinsælasta mynd ársins og Kio Briggs varð óvænt alþýðuhetja á Íslandi. Þetta er eitthvað sem samherjar Hlyns hafa bara lesið um í bókum. Aðeins tveir þeirra, Ægir og Shaquille Rombley, voru fæddir þegar Hlynur lék fyrsta leikinn í meistaraflokki. Baldur þjálfari var nýbyrjaður í sjö ára bekk. Tókst í fjórðu tilraun Ferilinn í meistaraflokki spannar því tæpa þrjá áratugi. Og á ýmsu hefur gengið. Hlynur lék með Skallagrími til 2002 en fór svo til Snæfells þar sem hann var leiðtogi liðs sem virtist aldrei ætla að komast yfir hjallann, að verða Íslandsmeistari. Hólmarar töpuðu þrisvar sinnum á fimm árum fyrir Keflvíkingum í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta virtist bara ekki ætla að heppnast. Hlynur lyftir Íslandsmeistarabikarnum eftir stórsigur Snæfells á Keflavík í oddaleik 2010.vísir/daníel En 2010 var Keflavíkurbölvuninni loks aflétt, og það með stæl. Snæfell vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil eftir yfirburðasigur á Keflavík í oddaleik suður með sjó. Þjálfari Snæfells, sem varð einnig bikarmeistari, var Ingi Þór Steinþórsson, núverandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Hlynur varð aftur meistari eftir sigur í oddaleik árið eftir, með Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Þar lék hann til 2016 er hann gekk í raðir Stjörnunnar, þá 34 ára. Fáa hefði grunað að hann ætti eftir að spila í níu tímabil í viðbót. Á ýmsu gekk hjá Hlyni á tíma hans hjá Sundsvall Dragons. Félagið varð meistari 2011 en gjaldþrota fimm árum seinna.vísir/valli Hlynur varð tvisvar sinnum deildarmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari með Stjörnunni en aldrei komst liðið í úrslit um stærsta titilinn. Og á síðasta tímabili komust Garðbæingar ekki einu sinni í úrslitakeppnina. Hlynur ákvað samt að taka eitt ár í viðbót. Það var ekki hægt að enda svona. Hikst og lítið hlutverk Stjarnan gaf í, Baldur kom í Garðabæinn eftir ársdvöl í Þýskalandi og með honum fylgdu þrír íslenskir landsliðsmenn; Hilmar Smári Henningsson, Orri Gunnarsson og Bjarni Guðmann Jónsson. Stjarnan fékk svo Jase Fabres og Rombley, tvo sterka liðsmenn. Eftir að hafa tapað oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn sem þjálfari Tindastóls 2023 fékk Baldur Þór Ragnarsson að kynnast hinni hliðinni á peningnum í gær.vísir/hulda margrét Framan af tímabili gekk allt vel, góður taktur var í Stjörnuliðinu en það hikstaði síðan verulega eftir áramót. Tilraunin með Jaka Klobucar misheppnaðist, Stjarnan laut í lægra haldi fyrir nýliðum KR í undanúrslitum bikarkeppninnar og tapaði sex af síðustu ellefu leikjum sínum í deildarkeppninni. Hlynur var í litlu hlutverki í deildinni, spilaði aðeins tæpar níu mínútur að meðaltali í leik og aðeins einu sinni meira en tuttugu mínútur. En það breyttist í úrslitakeppninni. Veðjað á reynsluna Hlynur missti af fyrstu tveimur leikjunum gegn ÍR en eftir það fór hlutverk hans stækkandi. Hann spilaði 21 mínútu í oddaleiknum gegn Grindavík þar sem hann reyndist ómetanlegur. Í leikjunum fimm gegn Tindastóli spilaði Hlynur svo aldrei minna en tæpar nítján mínútur í leik. Hann jafnaði í 69-69 þegar hann setti niður þriggja stiga skot er sjö mínútur voru eftir í leiknum í gær. Það var ekki í eina skiptið í úrslitakeppninni þegar hann skoraði mikilvæga þriggja stiga körfu. Hlynur fór út af þegar fjórar og hálf mínúta voru eftir en kom aftur inn á þegar Orri fékk sína fimmtu villu þegar 62 sekúndur voru eftir. Hann var því inni á vellinum þegar úrslitin réðust. Dedrick Basile minnkaði muninn í 77-80 og Sadio Doucoure gat jafnað en þriggja stiga skot hans geigaði. Stjarnan tók leikhlé þegar sextán sekúndur voru eftir, Tindastóll braut ekki og Rombley jók muninn aftur í fimm stig með troðslu. Basile reyndi neyðarskot sem missti marks, Rombley tók frákastið og því var ljóst að titilinn færi í Garðabæinn í fyrsta sinn. Hlynur augnabliki eftir að leiknum lauk.vísir/hulda margrét Flestir Stjörnumenn hoppuðu og skoppuðu um en Hlynur fól andlitið í treyjunni og hlammaði sér á gólfið. Eftir 28 ár af hörku, harðindum, sárindum og sigrum þurftu rúmlega fertugir fæturnir ekki að erfiða meira. Nú var tími til að hvílast, gleðjast; kominn í örugga höfn. Almættið lofsamað „Alsæla. Ég á hreinlega ekki orð,“ sagði Hlynur í viðtali við Andra Má Eggertsson eftir leikinn. „Stórkostlegt og eitthvað sem ég get tekið með mér í ellina. Ég verð lengi mjög stoltur af þessu liði. Þetta er búið að vera upp og niður hjá Stjörnunni. Nokkur vonbrigði sem við höfum lent í, við áttum þetta skilið eftir öll þessi ár. Ég þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta. Ég er búinn að vera lengi í þessu og hann var góður við mig.“ Hlynur varð tvívegis Íslandsmeistari, einu sinni sænskur meistari, fimm sinnum bikarmeistari, þrisvar sinnum deildarmeistari, var tvisvar sinnum valinn besti leikmaður deildarinnar, einu sinni besti ungi leikmaðurinn, þrisvar sinnum varnarmaður ársins á Íslandi og tvisvar sinnum í Svíþjóð, leiddi sænsku deildina þrisvar sinnum í fráköstum og er frákastahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi. Hann spilaði líka 129 landsleiki og leiddi íslenska liðið á tvö Evrópumót. Þetta var bara skrambi gott. Hlynur EM 2015. Þar mættu Íslendingar meðal annars stjörnum prýddum liðum Spánar, Serbíu og Þýskalands og Hlynur glímdi við Pau Gasol og Dirk Nowitzki.vísir/valli Kampavínið hefur eflaust aldrei verið sætara á bragðið og í búningsklefanum á Króknum í gær og reykurinn sem steig upp þegar sigurvindilinn var tendraður jafn svalur. Eins og sá sem sat með Íslandsmeistarabikarinn, á hinni fullkomnu endastöð eftir einstakan feril.
Bónus-deild karla Stjarnan Utan vallar Tengdar fréttir „Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ „Ferillinn er stolt. Ferillinn er vonbrigði og eftirsjá vegna þess sem ég hefði getað gert betur. Tekið betri ákvarðanir. En ég er stoltur og glaður að hafa farið í þetta. Flestir af þeim sem ég þekki í dag eru tengdir körfubolta. Ég á ofboðslega góðar minningar af þessum ferli.“ 22. maí 2025 10:30 Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Stjarnan varð í gær Íslandsmeistari í körfubolta karla í fyrsta sinn eftir sigur á Tindastóli, 77-82, í gær. Gleði Garðbæinga í leikslok var ósvikin. 22. maí 2025 08:00 „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Benedikt Guðmundsson var gríðarlega sár og svekktur eftir tap Tindastóls gegn Stjörnunni í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segir liðið hafa lagt sig vel fram en klikkað á allt of mörgum mikilvægum skotum. Spurningum um framtíðina var hann ekki tilbúinn að svara. 21. maí 2025 23:35 Ægir valinn verðmætastur Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar en vaggaði fingri þegar hann tók við verðlaununum. 21. maí 2025 23:09 Mest lesið Vinkonur ósáttar við ákvörðun Söru: „Við töluðumst ekki við í smátíma“ Fótbolti Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Körfubolti Þjálfari Íslendingaliðsins hné niður í úrslitaleiknum Handbolti Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Körfubolti Dræm mæting á fyrsta leik hafi verið Valsliðinu áfall Handbolti Trúlofað par tekið inn í FH fjölskylduna Handbolti Þeir bestu (8.-7. sæti): Markamaskínur frá Dalvík og Danmörku Íslenski boltinn Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Körfubolti Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt Körfubolti Fleiri fréttir EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt „Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ Lygilegur endurkomusigur Indiana í MSG Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Ægir valinn verðmætastur „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Shaq segist hundrað prósent Samfélagið á Sauðárkróki ekki í vinnuhæfu ástandi Þruman skellti í lás og tók forystuna Tryllt eftirspurn eftir miðum „Ég fékk að gera ótal mistök og læra af þeim“ Þakkaði sjálfboðaliðum og minnti á mikilvægi íþrótta Lögmálið: Er NBA að svindla í lottóinu? Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Pétur tekur við þjálfun Hauka „Fallegasta samband sem hægt er að mynda“ Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Benedikt: Hugsanlega breyta viðtöl línum í dómgæslu „Við máttum ekki gefast upp“ Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Stjarnan tryggði oddaleik eftir háspennu „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Sjá meira
„Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ „Ferillinn er stolt. Ferillinn er vonbrigði og eftirsjá vegna þess sem ég hefði getað gert betur. Tekið betri ákvarðanir. En ég er stoltur og glaður að hafa farið í þetta. Flestir af þeim sem ég þekki í dag eru tengdir körfubolta. Ég á ofboðslega góðar minningar af þessum ferli.“ 22. maí 2025 10:30
Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Stjarnan varð í gær Íslandsmeistari í körfubolta karla í fyrsta sinn eftir sigur á Tindastóli, 77-82, í gær. Gleði Garðbæinga í leikslok var ósvikin. 22. maí 2025 08:00
„Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Benedikt Guðmundsson var gríðarlega sár og svekktur eftir tap Tindastóls gegn Stjörnunni í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segir liðið hafa lagt sig vel fram en klikkað á allt of mörgum mikilvægum skotum. Spurningum um framtíðina var hann ekki tilbúinn að svara. 21. maí 2025 23:35
Ægir valinn verðmætastur Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar en vaggaði fingri þegar hann tók við verðlaununum. 21. maí 2025 23:09