Innlent

Telur líkur á að starfs­lok Úlfars tengist útlendingapólitík

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur. 
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur.  Vísir

Stjórnsýslufræðingur telur líkur á að afsögn Úlfars Lúðvíkssonar fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum tengist útlendingapólitík. Hann segir framvinduna undanfarna daga óvenjulega. 

„Þetta er mjög óvenjulegt,“ segir Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur en hann ræddi starfslokin í Reykjavík síðdegis. 

Greint var frá því að Úlfar hefði verið kallaður á fund dómsmálaráðherra á mánudag og honum tjáð að staða hans yrði auglýst og samningur við hann ekki endurnýjaður. Þá hefði hann beðist lausnar og sú beiðni verið samþykkt. 

Skiptar skoðanir hafa verið á starfslokunum, einkum hjá stjórnarandstöðunni, sem vildi að pólitíska stefnubreytingin, sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur nefnt sem ástæðu þess að hún vill auglýsa starfið, yrði til umræðu í þinginu. 

Haukur segir langalgengast að ráðningarsamningar í embættum sem þessu séu endurnýjaðir þegjandi og hljóðalaust. Það sé sjaldgæft að embættismönnum sé tjáð að staða þeirra verði auglýst. 

„Hitt er enn sjaldgæfara, að hann skuli leggja lyklana á borðið og segja: Ég vinn ekki þessa sex mánuði sem eftir eru,“ segir Haukur. 

Óvenjulegt að lögreglustjóri taki ekki þátt í stefnubreytingum

Hann segist ekki muna eftir sambærilegum tilvikum í íslenskri stjórnsýslu. Þá segir hann einnig sjaldgæft að embættismenn séu látnir fara af pólitískum ástæðum. 

„Það sem við sjáum einstaka sinnum er að fólk er látið skipta um starf inni í ráðuneytunum [...] en ekki að það hverfi frá störfum,“ segir Haukur og nefnir tilfærslu ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins og matvælaráðuneytisins þegar Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. 

Í máli Úlfars hafi pólitík tengd landamærunum líklega komið við sögu. 

„Þá held ég að útlendingapólitík eða pólitík um þá sem fara um landamærin, sem er gríðarlega viðkvæmt mál, hafi skipt máli í þessu efni. Ekki hvort menn eru til hægri eða vinstri, ekki flokkapólitík. Heldur stefnumörkun í þessu máli.

Og það vekur athygli mína að þegar á að fara að gera skipulagsbreytingar og pólitískar breytingar við landamærin eins og ráðherra er að boða, að lögreglustjórinn í Keflavík sé ekki potturinn og pannan í slíkum breytingum. Hann á að vera það.“

Þá segir Haukur koma til greina að fagleg ástæða liggi að baki ákvörðun Þorbjargar, en Úlfar hefur verið afdráttarlaus í ummælum sínum um ýmis mál sem tengjast embættinu, líkt og Mbl.is tók saman í dag. Þau kunni að hafa haft áhrif. 

Viðtalið í heild sinni er í spilaranum hér að neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×