Yfirvöld Mexíkó kæra Google Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. maí 2025 18:37 Claudia Sheinbaum er forseti Mexíkó. AP Yfirvöld í Mexíkó hyggjast kæra tæknifyrirtækið Google fyrir að breyta nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á landakortunum sínum í Bandaríkjunum. Þetta sagði Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó.
Fyrsta dag sinn í embætti undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti forsetatilskipun um að breyta ætti heiti Mexíkóflóa í Ameríkuflóa. Rökstuðningur forsetans fyrir ákvörðuninni var að Bandaríkin „vinna mestu vinnuna þar og hann er okkar.“ Eftir tilskipunina breytti Google heitinu á flóanum á landakortum bandarískra notenda Google í Ameríkuflóa. Þeir segjast hafa breytt heitinu þar sem venjan sé að breyta merkingum á landakorti í samræmi við ákvarðanir yfirvalda. Sheinbaum sendi yfirmönnum fyrirtækisins bréf í janúar og bað þá um að endurskoða breytinguna. Mánuði seinna hótaði hún lögsókn. Í tilkynningu Sheinbaum segir hún ekki hvort búið sé að leggja fram kæruna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem breytingin veldur átökum. Blaðamenn AP fréttaveitunnar neituðu að nota nýja heitið í fréttum sínum og var þeim þar af leiðandi meinaður aðgangur að blaðamannafundum í Hvíta húsinu. Þrátt fyrir úrskurð dómara í málinu er blaðamönnum fréttaveitunnar enn meinaður aðgangur. Fulltrúar Hvíta hússins hafa áfrýjað dómnum. Í umfjöllun BBC segir að Donald Trump hyggst breyta heiti annars flóa. Framundan er ferðalag hans til Sádi-Arabíu en þar kemur hann til með að tilkynna áætlun sína að breyta nafni Persaflóa í Arabíuflóa. Persaflói er á milli Íran og Sádi-Arabíu.
Mexíkó Google Donald Trump Bandaríkin Sádi-Arabía Fjölmiðlar Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira