Upp­gjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings

Hjörvar Ólafsson skrifar
Valur - Víkingur Besta Deild Karla Vor 2025
Valur - Víkingur Besta Deild Karla Vor 2025 vísir/Diego

Víkingur lagði Fram að velli, 3-2, þegar liðin áttust við í fimmtu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Heimavalli hamingjunnar í Fossvoginum í kvöld.

Davíð Örn Atlason kom Víkingi yfir tæplega 20 mínútna leik en Davíð Örn skallaði þá hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar inn í autt markið eftir að Niko Hansen framlengdi boltann til hans á fjærstöngina.

Um það bil tíu mínútum síðar var Erlingur Agnarsson svo búinn að tvöfalda forystu Víkings. Helgi Guðjónsson, sem spilaði aftur í vinstri bakvarðarstöðunni, fékk þá mikinn tíma til að athafna sig og kom með góða fyrirgjöf sem Erlingur kláraði af stakri prýði.

Vuk Oskar Dimitrijevic kom svo Fram aftur inn í leikinn með marki á 37. mínútu leiksins. Frammarar áttu þá flotta sókn upp hægri vænginn og boltinn endaði hjá Magnúsi Inga Þórðarsyni sem renndi boltanum á Vuk Oskari. Skot Vuks Oskars endaði í netinu og allt galopið fyrir seinni hálfleikinn.

Gylfi Þór Sigurðsson opnaði svo markareikning í Víkingstreyjunni í Bestu-deildinni þegar hann kom Víkingi í 3-1 um stundarfjórðungi fyir lok venjulegs leiktíma. Viktor Örlygur Andrason skar þá boltann niður á Gylfa Þór sem kom sér í betri stöðu með fumlausri snertingu. Gylfi Þór slúttaði svo með hnitmiðuðu skoti. 

Róbert Hauksson sem kom inná sem varamaður hleypti síðan spennu í uppbótartíma leiksins með því að skalla fyrirgjöf Kennie Chopart í netið í byrjun uppbótartímans sem var níu mínútur. 

Lengra komust Frammarar ekki og 3-2 sigur Víkgins staðreynd. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira