Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. apríl 2025 20:32 Stilla úr kvikmyndinni Ástin sem eftir er. Hlynur Pálmason Kvikmyndin Ástin sem eftir er eftir Hlyn Pálmason, með Sögu Garðarsdóttur og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, verður heimsfrumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni í maí. Myndin verður sýnd í Cannes Premiere-flokki hátíðarinnar, fyrst íslenskra mynda.
Í fréttatilkynningu segir að þetta sé í annað sinn sem verk eftir Hlyn sé valið í aðaldagskrá hátíðarinnar í Cannes. Árið 2022 tók mynd hans Volaða land þátt í flokki „Un Certain Regard“, og vann síðar til fjölda verðlauna. Myndin var framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2024 og náði inn á stuttlista akademíunnar í flokki erlendra kvikmynda. Hlynur heimsfrumsýndi einnig kvikmyndina Hvítan, hvítan dag í flokki „Semaine de la Critique“ í Cannes 2019. „Ástin sem eftir er fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla hið breytta samband þeirra,“ segir í fréttatilkynningu. Mynin er ekki sú fyrsta úr smiðju Hlyns sem heimsfrumsýnd er á Cannes.Hlynur Pálmason Þá segir að metfjöldi kvikmynda hafi sóst eftir heimsfrumsýningu í Cannes í ár, eða 2.909 verk. Sem fyrr segir er Hlynur fyrstur íslenskra leikstjóra til að heimsfrumsýna kvikmynd í Cannes Premiere-flokkinum, og slæst þar í hóp virtra leikstjóra eins og Fatih Akin, Sebastán Lelio, Takeshi Kitano og Leos Carax, sem hafa einnig frumsýnt nýjustu kvikmyndir sínar þar. Anton Máni Svansson, hjá STILL VIVD, framleiðir myndina ásamt Katrin Pors hjá danska framleiðslufyrirtækinu Snowglobe. Með helstu hlutverk fara Saga Garðarsdóttir, Sverrir Guðnason, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Þorgils Hlynsson, Grímur Hlynsson, Ingvar Sigurðsson, og Anders Mossling. Kvikmyndahátíðin í Cannes fer fram í 78. sinn dagana 13. – 24. maí.
Kvikmyndahátíðin í Cannes Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Frakkland Mest lesið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning