Umsagnir Heilbrigðiseftilitsins og Reykjavíkurborgar um svokallaða „græna gímaldið“ hafa borist í Skipulagsgátt. Við byggingarreit á Álfabakka 2-4 er búið að byggja stórt grænt hús sem á að hýsa dótturfélög Haga, kjötvinnslu Ferskar kjötvörur og Eldum rétt.
Byggingin hefur skapað mikla umræðu en til að mynda hefur Búseti lagt fram stjórnsýslukæru vegna byggingarinnar þar sem farið er fram á framkvæmdir verði stöðvaðar. Íbúar í fjölbýlishúsi í Breiðholti eru einnig ekki ánægðir með húsið, sem er steinsnar frá stofugluggum þeirra.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur (HER) hefur gert þónokkrar athugasemdir í umsögn sinni um kjötvinnsluna í Álfabakka 2a. Þar á meðal er bent á hávaðakvartanir sem hafa borist eftirlitinu varðandi samskonar kjötvinnslu í Síðumúlanum líkt og eigi að vera í Álfabakkanum.
„HER vill byrja á að benda á að ekki er rétt að kjötvinnslan í Síðumúla 34 hafi starfað án vandkvæða í nágrenni við íbúðarbyggð. HER hefur móttekið kvartanir vegna hávaða frá vöruafgreiðslu, losun úrgangsgáma og frá kæliviftum/pressum utan á húsinu,“ segir í umsögninni.
Heilbrigðiseftirlitið setur einnig út á að vinnslan sem tekur til starfa í Álfabakka sé skilgreind sem léttur iðnaður. Engin skilgreining sé til á hvað sé léttur iðnaður en þeir telji starfsemina mjög umfangsmikla. Ekki komi fram í tilkynningu um bygginguna hversu umfangsmikil kjötvinnslan verði
„Hún getur haft í för með sér ónæði, mengun og álag á fráveitu,“ stendur í umsögninni.
Hafa borist hávaðakvartanir
Einnig hefur HER borist hávaðakvartanir frá kjötvinnslu Ferskra kjötvara og eru teknar fram áhyggjur um að hljóðveggir sem eigi að koma í veg fyrir hávaða í Álfabakka muni ekki nægja.
„Kæliviftur og kælipressur eru algeng ástæða hávaðakvartana enda berst bæði frá þeim stöðugur hávaði en eins og geta komið púlsar í hávaða frá pressum. Gert er ráð fyrir hljóðvegg í kringum þennan búnað hjá fyrirhugaðri kjötvinnslu en hann er staðsettur á þaki úrgangsgeymslu. Heilbrigðiseftirlitið hefur helst áhyggjur af því að þar sem búnaðurinn stendur hátt þá geti hávaðamengun mögulega borist yfir hljóðvegg og verið greinanlegur í umhverfinu,“ stendur í umsögninni.
Þá benda HRE einnig á hávaða af völdum meðhöndlunar og flutningi á úrgangi. Oft séu þjónustufyrirtæki á ferðum að næturlagi og því fylgja skellir og hávaði.
„Starfsemin verður staðsett í þeim enda byggingarinnar sem stendur fjær íbúðarbyggð en hávaði eins og skellir geta borist langt og verið sérstaklega vel greinanlegir á næturtíma þegar annar hávaði er ekki ríkjandi.“
Gert er ráð fyrir 6-700 ferðum að öllu húsinu sem er mikil aukning á þungaumferð á svæðinu.
„Heilbrigðiseftirlitið hefur áhyggjur af því að aukin þungaumferð á svæðinu hafi áhrif á öryggi, sérstaklega gangandi og hjólandi vegfarenda. Álfabakki 2 liggur að íþróttasvæði ÍR og mikill fjöldi barna og unglinga fer um svæðið vegna þessa.“
Auk aukins umferðarþunga og hávaða segir HRE nauðsynlegt að benda á frárennslismál.
„Fitugildrur verða vissulega til staðar á frárennsli en þess þarf að gæta að staðsetja þær þannig að ekki geti borist frá þeim ólykt í gegnum útloftun eða við tæmingu.“
Mikil vatnsnoktun fylgi þrifum í stórum matvælafyrirtækjum og kalla þau eftir að fulltrúar Veitna telji hvort að fráveitukerfið á svæðinu geti annast álaginu. Þá þarf að athuga hvort hreinsiefnin skerði ekki hreinsigetu fituskilja sem geti leitt til stíflu og tryggja þarf að sýrustig frárennslis valdi ekki skaða á fráveitulögnum.
„Verði skaði á lögnum getur það haft áhrif á nærliggjandi rekstur og íbúðir.“
Byggingin samræmist heimildum
Í umsögn Reykjavíkurborgar er farið yfir hvort starfsemi vöruskemmunnar falli undir stefnu um landnotkun í Suður-Mjódd. Þar er heimild fyrir fjölbreyttri verslunar- og þjónustustarfsemi og annarri hreinlegri atvinnustarfsemi.
Þrátt fyrir að kjötvinnslan sé umfangsmikil valdi hún óverulegum umhverfisáhrifum og samræmist heimildunum sem liggja fyrir þar sem að í vöruskemmunni verði skrifstofur, verslun og þjónusta.
„Í slíkum tilvikum þarf ávallt að gæta vel að hönnun og útfærslu starfseminnar og umhverfisáhrifum vegna mögulegrar nálægðar við íbúðarbyggð,“ segir í umsögn Reykjavíkurborgar undirrituð af skipulagsfulltrúa