Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 2. apríl 2025 16:04 Marco Rubio og Donald Trump, utanríkisráðherra og forseti Bandaríkjanna. Rubio ætlar að lýsa því yfir við utanríkisráðherra annarra NATO ríkja að Bandaríkjamenn séu ósáttir við að Evrópa stefni á að draga úr kaupum sínum á hergögnum frá Bandaríkjunum. AP Bandarískir embættismenn og erindrekar hafa kvartað við kollega sína í Evrópu yfir ætlunum ráðamanna þar um að draga úr hergagnakaupum frá Bandaríkjunum. Mörg ríki Evrópu stefna nú á umfangsmikla hernaðaruppbyggingu sem má að hluta til rekja til ótta við að Evrópa geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin.
Meðal markmiða þessara uppbyggingar er að gerbreyta öryggiskerfi Evrópu og reiða mun minna á Bandaríkin en áður hefur verið gert. Þetta er í kjölfar þess að Trump og embættismenn hans hafa sagt að Evrópa verði að bera meiri ábyrgð á eigin öryggi og í kjölfar þess að Trump-liðar hafa fært Bandaríkin mun nær Rússlandi og jafnvel talað máli Rússa. Sjá einnig: Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Það að Trump stöðvaði flæði hergagna til Úkraínu um tíma og hætti að deila mikilvægum upplýsingum með Úkraínumönnum vakti einnig miklar áhyggjur ráðamanna í Evrópu um að Bandaríkjamenn gætu seinna meir gert það sama við þá. Trump hefur einnig lýst því yfir að hann muni ekki endilega koma öðrum NATO-ríkjum til varnar, verði ráðist á þau. Hann hefur ítrekað verið harðorður í garð Evrópu um að ríki heimsálfunnar hafi leikið Bandaríkin grátt í gegnum árin. Sjá einnig: Ætla að sigra í vopnakapphlaupi við Rússa Á undanförnum fimm árum hafa kaup Evrópu á hergögnum frá Bandaríkjunum aukist til muna. Heilt yfir hefur innflutningur Evrópu á hergögnum rúmlega tvöfaldast, sé hann borinn saman við fimm ár þar áður. Nærri því tveir þriðju þessara hergagna komu frá Bandaríkjunum. Hergagnaiðnaður Evrópu mjög háður íhlutum sem framleiddir eru í Bandaríkjunum. Sum hergagnaframleiðsla í Bandaríkjunum er einnig háð íhlutum frá ríkjum í Evrópu en í mun minna mæli. Nú hafa leiðtogar Evrópusambandsins sett reglur um að til að fá lán hjá sambandinu fyrir hergagnakaupum, verða 65 prósent þeirra hergagna að vera framleidd innan landamæra þess. Ætlar að tala við aðra ráðherra Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum í Evrópu og í Bandaríkjunum að Marco Rubio, utanríkisráðherra Trumps, hafi á fundi með utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna á dögunum lýst því yfir að Bandaríkjamenn myndu líta það neikvæðum augum að vera útilokaðir frá hergagnakaupum Evrópuríkja. Aðrir erindrekar eru sagðir hafa komið svipuðum skilaboðum á framfæri víðar um Evrópu. Það er að Bandaríkjamenn séu ekki sáttir við að Evrópa ætli að draga úr hergagnakaupum sínum frá Bandaríkjunum. Rubio ætlar að ræða þetta í heimsókn sinni til Brussel í vikunni, þar sem utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagins munu koma saman. Sjá einnig: Húðskammaði ráðamenn í Evrópu Reuters hefur eftir talsmanni utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna að Trump taki því fagnandi að ríki Evrópu ætli að auka útgjöld til varnarmála og taka meiri ábyrgð á eigin öryggi en varaði við því að útiloka bandarísk fyrirtæki frá uppbyggingunni. Hann sagði að samvinna á sviðið hergagnaframleiðslu yfir Atlantshafið styrkti NATO. Ríkisstjórn Trumps er með til skoðunar að gera umfangsmiklar breytingar á yfirstjórn herafla Bandaríkjanna og samhliða því afsala sér stjórn á herafla Atlantshafsbandalagsins. Það þykir til marks um að mögulega ætli Bandaríkjamenn að draga úr umsvifum sínum innan bandalagsins.
Bandaríkin Donald Trump Evrópusambandið NATO Hernaður Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að rússneskum hermönnum muni fjölga á norðurslóðum. Á sama tíma gagnrýndi hann aðildarríki Atlantshafsbandalagsins fyrir meinta vígvæðingu á norðurslóðum. Þetta sagði hann í ræðu sem hann flutti í dag um þau fjölmörgu og stóru tækifæri á þessum slóðum og ætlanir ríkisstjórnar hans til að nýta þau. 27. mars 2025 18:04 Danir kveðja konur í herinn Danir munu byrja að kveðja konur í herinn næsta sumar. Konur sem verða átján ára eftir 1. júlí í sumar gætu því þurft að hefja ellefu mánaða herskyldu á næsta ári. Mun það eiga við konur sem verða átján ára eftir 1. júlí í sumar. 25. mars 2025 20:15 Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Stjórnvöld í Kreml halda því fram að þau ræði nú við Bandaríkjastjórn um að taka Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti aftur í notkun. Evrópuríki hafa miklar efasemdir um það jafnvel þótt friður komist á í Úkraínu. 27. mars 2025 11:06 Mesta endurnýjun vopnabúrs Svíþjóðar frá kalda stríðinu Sænska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún ætlaði að taka þrjú hundruð milljarða sænskra að láni til þess að endurnýja vopnabúnað Svíþjóðar. Aðgerðirnar eru þær umfangsmestu frá tímum kalda stríðsins, að sögn Ulfs Kristersson, forsætisráðherra. 26. mars 2025 13:44 Vilja aðstoð við útflutning og losna við þvinganir áður en þeir hætta árásum Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur gert samkomulag við ráðamenn í Rússlandi og Úkraínu um vopnahlé á Svartahafi. Einnig á samkomulagið að fela í sér að árásum á orkuinnviði í Úkraínu og í Rússlandi verði hætt og í staðinn ætla Bandaríkjamenn að hjálpa Rússum við að auka útflutning. 25. mars 2025 18:16 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira
Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að rússneskum hermönnum muni fjölga á norðurslóðum. Á sama tíma gagnrýndi hann aðildarríki Atlantshafsbandalagsins fyrir meinta vígvæðingu á norðurslóðum. Þetta sagði hann í ræðu sem hann flutti í dag um þau fjölmörgu og stóru tækifæri á þessum slóðum og ætlanir ríkisstjórnar hans til að nýta þau. 27. mars 2025 18:04
Danir kveðja konur í herinn Danir munu byrja að kveðja konur í herinn næsta sumar. Konur sem verða átján ára eftir 1. júlí í sumar gætu því þurft að hefja ellefu mánaða herskyldu á næsta ári. Mun það eiga við konur sem verða átján ára eftir 1. júlí í sumar. 25. mars 2025 20:15
Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Stjórnvöld í Kreml halda því fram að þau ræði nú við Bandaríkjastjórn um að taka Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti aftur í notkun. Evrópuríki hafa miklar efasemdir um það jafnvel þótt friður komist á í Úkraínu. 27. mars 2025 11:06
Mesta endurnýjun vopnabúrs Svíþjóðar frá kalda stríðinu Sænska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún ætlaði að taka þrjú hundruð milljarða sænskra að láni til þess að endurnýja vopnabúnað Svíþjóðar. Aðgerðirnar eru þær umfangsmestu frá tímum kalda stríðsins, að sögn Ulfs Kristersson, forsætisráðherra. 26. mars 2025 13:44
Vilja aðstoð við útflutning og losna við þvinganir áður en þeir hætta árásum Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur gert samkomulag við ráðamenn í Rússlandi og Úkraínu um vopnahlé á Svartahafi. Einnig á samkomulagið að fela í sér að árásum á orkuinnviði í Úkraínu og í Rússlandi verði hætt og í staðinn ætla Bandaríkjamenn að hjálpa Rússum við að auka útflutning. 25. mars 2025 18:16