Innherji

Boða kaup­auka­kerfi fyrir starfs­menn Ís­lands­banka þegar ríkið hefur selt

Hörður Ægisson skrifar
Linda Jónsdóttir, formaður stjórnar Íslandsbanka, segir að til þess að bankinn geti verið samkeppnishæfur um starfsfólk á fjármálamarkaði sé stjórnin núna að undirbúa innleiðingu á hvatakerfi fyrir starfsmenn.
Linda Jónsdóttir, formaður stjórnar Íslandsbanka, segir að til þess að bankinn geti verið samkeppnishæfur um starfsfólk á fjármálamarkaði sé stjórnin núna að undirbúa innleiðingu á hvatakerfi fyrir starfsmenn. Aðsend

Núna þegar útlit er fyrir að eignarhlutur ríkissjóðs í Íslandsbanka minnki verulega í væntanlegu hlutafjárútboði, og fari að sennilega í eða undir um fimmtungshlut, þá hefur stjórnin boðað að hún ætli í kjölfarið að endurvekja kaupaaukakerfi fyrir starfsmenn, rúmlega átta árum eftir að það var lagt niður þegar bankinn komst í eigu ríkisins. Stjórnarformaður Íslandsbanka beinir einnig spjótum sínum að Seðlabankanum og segir mikilvægt að hann skýri nánar þær íþyngjandi kröfur sem eru lagðar á bankakerfið, meðal annars hvort við sem þjóð séum reiðubúin að greiða kostnaðinn sem þeim fylgir.


Tengdar fréttir

„Hverjum manni aug­ljóst“ að um­gjörð banka­kerfisins skaðar sam­keppnis­hæfni

Það ætti að vera „hverjum manni augljóst“ að umgjörðin um fjármálakerfið, sem felst í sértækum sköttum og gullhúðun regluverks, dregur úr samkeppnishæfni og eykur kostnað alls íslensks atvinnulífs, ekki aðeins fjármálageirans, að sögn stjórnarformanns Kviku sem hvetur stjórnvöld til að ráðast í úrbætur. Hann segir að með fjármununum sem fást við söluna TM, sem var samþykkt að greiða út að stórum hluta í arð til hluthafa á aðalfundi í gær, sé tekið mikilvægt skref til að ná meðal annars markmiðum um að aukar vaxtatekjur bankans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×