Eyjólfur Árni hættir hjá SA Atli Ísleifsson skrifar 28. mars 2025 09:04 Eyjólfur Árni Rafnsson. Vísir/Vilhelm Eyjólfur Árni Rafnsson verður ekki í framboði til formanns á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer 15. maí næstkomandi. Eyjólfur Árni hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins frá vorinu 2017.
Frá þessu segir á vef SA. Þar kemur fram að Eyjólfur Árni skilji við samtökin í góðu horfi, langtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði séu í gildi, stefna og sýn samtakanna hafi verið endurmörkuð ásamt stjórnskipulagi og fjárhagsleg staða samtakanna sé sterk. „Eyjólfur leiddi samtökin í gegnum þrjár kjarasamningslotur sem allar hafa sett sitt mark á íslenskan vinnumarkað, nú síðast Stöðugleikasamningana sem mörkuðu vatnaskil hvað varðar efnahagslegan stöðugleika, baráttuna við verðbólgu og lækkun vaxta. Samtök atvinnulífsins og forveri þeirra, Vinnuveitendasamband Íslands, eiga sögu sína að rekja allt aftur til ársins 1934 en samtökin hafa alltaf verið málsvari íslensks atvinnulífs gagnvart stjórnvöldum og stéttarfélögum auk þess að vera í forystu um samkeppnishæft rekstrarumhverfi og eiga þannig lykilþátt í því að skapa hagsæld á Íslandi. Eyjólfur leiddi samtökin eftir þeim gildum á starfstíma sínum og hann lagði enn fremur sérstaka áherslu á að efla hagsmunagæslu íslensks atvinnulífs á alþjóðlegum vettvangi og hefur verið virkur þátttakandi í starfi á vettvangi systursamtaka Samtaka atvinnulífsins í Evrópu og á Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Eyjólfi Árna að hann vilji þakka öllum þeim sem hann hafi starfað með á vettvangi SA, stjórnarfólki og starfsfólki samtakanna og aðildarfélögum fyrir traustið síðustu átta ár. „Einnig vil ég þakka forsvarsfólki stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði fyrir traust og gefandi samstarf á undanförnum árum. Vissulega greinir okkur oft á en markmiðin eru í stóru myndinni sameiginleg, að treysta og bæta hag fólks en jafnframt standa vörð um öflugt atvinnulíf og stöðugt efnahagsumhverfi.“
Atvinnurekendur Vistaskipti Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira