„Við skulum ekki gera pólitík úr þessu máli“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. mars 2025 16:55 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ásthildur Lóa Þórsdóttir fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. Samsett Mál fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra var mikið til umræðu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Forsætisráðherra ítrekaði að þetta væri viðkvæmt persónulegt mál sem ætti ekki að gera pólitík úr. Forseti Alþingis þurfti ítrekað að minna á ræðutíma þar sem þingmenn og ráðherrar höfðu mikið að segja um málið.
Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins, tók fyrst til máls í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. „Það er því ekki tilefni til að velta því frekar upp hér í þingsal hvaða mat eigi að leggja á þessa fortíð. Þar sem situr eftir og kallar á svör er ábyrgð forsætisráðherra,“ sagði Guðrún. Ásthildur Lóa bað Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, lausnar sem mennta- og barnamálaráðherra í gær eftir að upp kom að þegar hún var rúmlega tvítug átti hún barn með pilti á sautjánda ári. Málið kom á borð forsætisráðherra sex dögum áður en fjallað var um það í fjölmiðlum. Ólöf Björnsdóttir, fyrrverandi tengdamóður barnsföður Ásthildar Lóu, vildi ræða við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra en taldi Kristrúnu hafa brotið trúnað með því að láta Ásthildi vita af erindinu. Kristrún þvertekur fyrir og segir Ólöfu aldrei hafa beðið um trúnað. Aðstoðarmaður Ásthildar fékk sent skjáskot af fyrirspurn Ólafar og kom fram símanúmer hennar og heimilisfang á skjáskotinu. Ásthildur hringdi í Ólöfu og mætti seinna heim til hennar. Viðbrögð Ásthildar ekki eðlileg „Hvers vegna var það mat forsætisráðherra og samstarfsflokkanna að Ásthildur Lóa skyldi víkja úr embætti og hvaða aðrir kostir voru í raun til skoðunar áður en ákvörðunin var tekin?“ spurði Guðrún Kristrúnu. „Ég verð að segja að í grundvallaratriðum er það fyrrverandi ráðherra að segja frá því hvers vegna hún tekur þá ákvörðun að segja af sér. Samtal okkar þriggja á milli verður ekkert viðrað hér í smáatriðum,“ svaraði Kristrún. Ekki kom fram í svari hennar hvaða aðrir kostir voru til skoðunar. Málið hafi verið rætt þaula á fundi Kristrúnar með Ásthildi en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins sátu einnig fundinn. „Ásthildur Lóa Þórsdóttir er meðvituð um það að það voru ekki eðlileg viðbrögð hjá henni að ákveða að banka upp á hjá umræddri konu. Ég held að það geti allir tekið undir það að það er ekki eðlileg hegðun af hálfu ráðherra í þessu samhengi. Þannig að það eitt og sér er umhugsunarvert á manneskju í slíkri stöðu, hún áttaði sig á því og var líka meðvituð um það,“ sagði Kristrún. Guðrún benti á að Kristrún og Ásthildur hittust þónokkrum sinnum á þeim sex dögum frá beiðni Ólafar um fund þar til ráðherrarnir funduðu um málið. „Ef forsætisráðherra taldi málið svo alvarlegt að það réttlæti afsögn ráðherrans, hvers vegna gerði hæstvirtur forsætisráðherrann ekkert í heila viku?“ spurði Guðrún. „Það voru sex dagar liðnir frá því að erindið kom inn í forsætisráðuneytið, þar með talið er helgi þarna á milli, þó að stjórnsýslan hafi ekki hreyft sig í ákvarðanatöku í þessu máli eftir sex daga þýðir ekki að ekkert hafi verið gert,“ svaraði Kristrún. Engum sé umhugað um konuna Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins beindi fyrirspurn sinni einnig að Kristrúnu. „Engum er umhugað um konuna sem bað um áheyrn um málið og bað um leiðbeiningar svo að fyllsta trúnaði yrði gætt,“ sagði Hildur í ræðustól. Hún spurði af hverju forsætisráðherra taldi það í lagi að afhenda Ásthildi símanúmer og heimilisfang Ólafar sem hafi bæði verið hundsuð af forsætisráðuneytinu sem hafnaði beiðni um fund og áreitt af fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. „Ég vil spyrja háttvirtan forsætisráðherra, finnst henni í himnalagi hvernig á þessu máli var haldið af hálfu forsætisráðuneytisins gagnvart þeirri konu?“ spurði Hildur. Í svari Kristrúnar sagði hún að konan hefði undirritað beiðni sína með símanúmeri og heimilisfangi en skjáskot hafi verið tekið að beiðninni sem sent var á aðstoðarmann Ásthildar. „Það er ekkert í því sem forsætisráðuneytið gerði við umsýslu þessa máls sem er við að athuga. Ég stend við það,“ sagði Kristrún. Einnig sé engin að halda því fram að hegðun Ásthildar hafi verið eðlileg gagnvart Ólöfu. „Það er margt við þetta mál sem gerir það að verkum að það þyki ekki eðlilegt að hún sitji sem ráðherra og hún hefur axlað ábyrgð,“ sagði Kristrún. Hildur spurði þá hvort ekki væri hægt að koma á framfæri ábendingum sem varðaði ráðherra. „Hvaða skilaboð er verið að senda gagnvart þeim sem áskynja að verða um eitthvað misjafnt varðandi ráðherrum ríkisstjórnarinnar? Er ekki hægt að koma fram með alvarlegar ábendingar um ráðherra í ríkisstjórn Íslands? Máttu búast við því að umræddur ráðherra fái upplýsingar um þig?“ spurði Hildur. „Ég verð bara að segja að þessir útúrsnúningar séu ekki háttvirtum þingmanni til framdráttar,“ svaraði Kristrún. Hún segir að það að beiðni um fund hafi verið hafnað hafi forsætisráðuneytið ekki tekið afstöðu í málinu en það að fá einkafund með forsætisráðherra sé ekki sjálfsagt og margt annað sé hægt að gera. „Hún tók stórt skref í íslenskri stjórnmálasögu“ Undir lokin tók Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, til máls. Hún ítrekaði spurningu Guðrúnar um hvaða valkostir hafi verið í boði fyrir Ásthildi á fundi hennar og formanna ríkisstjórnaflokkanna. „Við skulum ekki gera pólitík úr þessu máli,“ sagði Kristrún. „Þá beini ég háttvirtum þingmanni að ræða við hana, ekki taka af henni valdið í þessum sal og láta eins og hún hafi ekki sitt eigið ákvörðunarvald,“ sagði hún. „Hún tók stórt skref í íslenskri stjórnmálasögu.“ Kristrún, Þorgerður, og Inga, formenn ríkisstjórnarflokkanna, hafi ekki beitt Ásthildi neinum þrýstingi heldur tók hún ákvörðunina um afsögnina á eigin forsendum. „Við getum talað saman sem kollegar, sem manneskjur, sem vinkonur og rætt og ráðlagt án þess að taka af henni valdið,“ sagði Kristrún.
Barnamálaráðherra segir af sér Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Samfylkingin Flokkur fólksins Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Sjá meira