Hreiðar Már ráðinn forstjóri Eikar Árni Sæberg skrifar 21. mars 2025 15:54 Eik fasteignafélag er eitt það öflugasta sinnar tegundar á landinu og á meðal annars Turninn í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Stjórn Eikar fasteignafélags hf. ákvað á fundi sínum í dag að ráða Hreiðar Má Hermannsson í starf forstjóra félagsins.
Í tilkynningu þess efnis segir að Hreiðar Már taki við starfinu í framhaldi af aðalfundi félagsins þann 10. apríl næstkomandi af Garðari Hannesi Friðjónssyni, sem leitt hafi félagið og byggt upp undanfarin 22 ár. Hreiðar Már sé með B.A. gráðu í fjármálum frá London South Bank University Business School og M.Sc. gráðu í fjármálum, fjárfestingum og bankastarfsemi frá sama skóla. Hreiðar Már hafi víðtæka reynslu af fjárfestinga- og fjármálastarfsemi. Hann komi til Eikar frá Arion banka þar sem hann hafi gengt stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar á fyrirtækja og fjárfestingabankasviði. Áður hafi Hreiðar Már starfað við útlánastarfsemi til fyrirtækja, eignastýringu og ráðgjöf í tuttugu ár. „Við erum afar ánægð með að fá Hreiðar Má til liðs við okkar öfluga félag og hlökkum til samstarfsins. Við teljum að reynsla hans og framtíðarsýn muni styrkja stöðu félagsins á markaði og styðja við áframhaldandi arðbæran vöxt og þróun þess. Framundan eru fjölmörg tækifæri,“ er haft eftir Bjarna K. Þorvarðarsyni, stjórnarformanni Eikar fasteignafélags. „Eik er spennandi fyrirtæki, sem starfar á markaði sem mun vaxa og taka breytingum á komandi misserum. Efnahagur félagsins er fyrna sterkur auk þess sem það atvinnuhúsnæði og þeir þróunarmöguleikar sem eru nú þegar á efnahagsreikningnum eru mjög áhugaverðir. Samfélagið okkar er að breytast, þarfir atvinnulífsins eru að breytast og Eik fasteignafélag er í kjör aðstöðu til að láta þar að sér kveða. Ég þakka stjórn Eikar traustið og hlakka til að vinna með starfsmönnum og viðskiptavinum að tækifærum sem blasa við félaginu,“ er haft eftir Hreiðari Má.
Eik fasteignafélag Leigumarkaður Fasteignamarkaður Vistaskipti Arion banki Mest lesið Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Sjá meira