Kári: Bara negla þessu niður Árni Jóhannsson skrifar 1. mars 2025 21:40 Kári Jónsson var mikilvægur í kvöld Vísir / Anton Brink Kári Jónsson var hetja Valsara í kvöld þegar hann kom sínum mönnum yfir 88-87 þegar 27 sekúndur voru eftir af leiknum við ÍR í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Leiknum lauk með 90-87 sigri og Valsmenn festa sig í sessi í fjórða sæti deildarinnar.
Kári lauk leik með 14 stig í kvöld og var umræddur þristur sá eini sem rataði í gegnum gjörðina í kvöld. Hann var spurður að því hvað hafi skilað þessu. „Barátta og vinnusemi það er bara það. Rosalega erfiður leikur og ég er mjög sáttur við að klára þetta.“ Kári kom sínum mönnum yfir með þrist eftir sóknarfrákast Kristófers Acox þegar um 27 sekúndur voru eftir af leiknum. Hvað flaug í gegnum huga hans á því augnabliki? „Bara að setja hann ofan í. Það eru allir þreyttir og maður þarf bara að negla þessu niður. Ég fékk geggjað tækifæri eftir sóknarfrákastið og Kristó fann mig. Ég var ekki búinn að hitta neitt í leiknum og það var að pirra mig og það var sætt að sjá þetta ofan í.“ Fannst Kára ÍR-ingarnir vera erfiðari en hann átti von á? „Þeir voru ekki erfiðari en ég átti von á. Þeir áttu frábæran leik, voru hitta frábærlega úr þristum, pressuðu okkur grimmt og við bara vorum í bölvuðu basli. Náðum einhverjum mun í fjórða en náðum aldrei að hrista þá af okkur. Hrikalega mikilvægur sigur.“ Að lokum var Kári spurður að því hvað þeir tækju út úr þessu. Hann þurfti smá stund til að hugsa sig um en endaði skælbrosandi. „Við getum verið góðir og erum að leggja helvíti mikið á okkur. Þetta er skemmtilegt. Það er það sem ég tek út úr þessu eitt, tvö og þrjú.“
Bónus-deild karla Valur Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira