Hlýleg stemmning og einstök matarupplifun Sjávargrillið 3. mars 2025 08:47 Sjávargrillið er veitingastaður vikunnar á Vísi. Staðurinn er þekktur fyrir hlýlega og heimilislega stemmningu. Í hjarta Reykjavíkur, á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu er að finna veitingastaðinn Sjávargrillið. Staðurinn er þekktur fyrir að bjóða upp á einstaka matarupplifun þar sem ferskasta hráefni er í forgrunni. Sjávargrillið er veitingastaður vikunnar á Vísi. „
Það má segja að ég sé að ferma „barnið“ en ég opnaði Sjávargrillið fyrir fjórtán árum, í apríl 2011. Okkar höfuðáhersla hefur alltaf verið á fyrsta flokks hráefni og að gera allt frá grunni, bæði mat og drykki,“ segir Gústav Axel Gunnlaugsson, matreiðslumeistari og eigandi Sjávargrillsins. Sjávargrillið „Einn vinsælasti rétturinn okkar á Sjávargrillinu er humar taco en við bjóðum að sjálfssögðu upp á bæði kjöt- og fiskrétti, sushi og fersk salöt. Í hádeginu er fiskur dagsins ávallt vinsæll kostur og við sækjum ferskan fisk á hverjum morgni til að tryggja hámarks gæði,“ segir Gústav. Matreiðslumeistarar staðarins leggja metnað sinn í að nýta fyrsta flokks hráefni og skapa rétti sem gleðja bragðlaukana. Matseðillinn er fjölbreyttur og breytist þrisvar til fjórum sinnum á ári til að endurspegla árstíðabundin hráefni. Sérstakir hátíðarseðlar eru í boði, til dæmis um jólin, sem gleðja bæði auga og munn. Sjávargrillið „Barþjónarnir okkar eru sannkallaðir snillingar í að hrista fram framúrskarandi kokteila en allir drykkir eru búnir til frá grunni. Sjávargrillið laðar að sér breiðan hóp gesta, bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Staðurinn er þekktur fyrir hlýlega og heimilislega stemmningu þar sem starfsfólkið þekkir marga fastagesti með nafni og veit hvað þeir vilja. Þetta skapar notalegt andrúmsloft þar sem allir eru velkomnir. Sjávargrillið Skólavörðustígurinn er líflegur og er tilvalin fyrir þá sem vilja njóta mannlífsins í miðborginni. Nálægðin við kennileiti eins og Hallgrímskirkju og Hegningarhúsið gerir Sjávargrillið að ákjósanlegum áfangastað fyrir þá sem vilja sameina menningarlegt miðbæjarrölt og góða matargerð. Hvort sem þú ert að leita að stað til að halda hádegisfund með vinnufélögum eða njóta kvöldverðar með vinum og fjölskyldu, býður Sjávargrillið upp á hlýlegt umhverfi, framúrskarandi þjónustu og matargerð sem gleður alla. Sjávargrillið Sjávargrillið Sjávargrillið Sjávargrillið
Matur Veitingastaðir Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira