Viðskipti erlent

Ofurstinn flytur til Texas

Samúel Karl Ólason skrifar
Andlit Sanders ofursta prýðir um þrjátíu þúsund skyndibitastaði víðsvegar um heiminn. Hann stofnaði KFC í Kentycky en nú stendur til að flytja höfuðstöðvar fyrirtækisins til Texas.
Andlit Sanders ofursta prýðir um þrjátíu þúsund skyndibitastaði víðsvegar um heiminn. Hann stofnaði KFC í Kentycky en nú stendur til að flytja höfuðstöðvar fyrirtækisins til Texas. EPA/FAZRY ISMAIL

Höfuðstöðvar skyndibitakeðjunnar Kentucky Fried Chicken verða fluttar frá Louisville í Kentucky til Plano í Texas. Þetta tilkynntu forsvarsmenn Yum Brands, móðurfélags KFC, í gær. Fyrirtækið víðfræga var, eins og nafnið gefur til kynna, stofnað í Kentucky.

Um er að ræða lið í áætlun um að hafa tvær höfuðstöðvar. KFC og Pizza Hut verða í Plano en Taco Bell og Habit Burger & Grill verða í Irvine í Kaliforníu, samkvæmt yfirlýsingu.

Þar segir einnig að KFC sé ekki alfarið að segja skilið við Kentucky. Áfram verði rekin skrifstofa í Louisville.

Fjölmörg fyrirtæki Bandaríkjanna hafa flutt höfuðstöðvar sínar til Texas á undanförnum árum vegna hagstæðra fyrirtækjaskatta og stefnumála sem þykja vinveitt stórum fyrirtækjum. Flutningar fyrirtækja hafa verið sérstaklega tíðir eftir faraldur Covid.

BBC hefur þó eftir Andy Beshear, ríkisstjóra Kentucky, að hann sé vonsvikinn með þessa ákvörðun og segist viss um að Harland David Sanders, ofursti og stofnandi KFC, hefði einnig verið ósáttur. Ofurstatitill Sanders var heiðurstign sem hann hlaut af þáverandi ríkisstjóra Kentucky árið 1935. 

„Nafn fyrirtækisins byrjar á Kentucky og það hefur markaðssett arfleifð ríkis okkar og menningu með vörum sínum,“ sagði Beshear.

Sanders stofnaði KFC á fjórða áratug síðustu aldar þegar hann byrjaði að selja steiktan kjúkling í Corbin í Kentucky. Nú er andlit hans á um þrjátíu þúsund skyndibitastöðum í fleiri en 145 ríkjum um heiminn allan, samkvæmt vef Yum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×