Skytturnar gengu frá Englandsmeisturunum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. febrúar 2025 16:03 Myles Lewis-Skelly fagnaði sínu fyrsta úrvalsdeildarmarki með því að fagna að hætti Haaland. Alex Pantling/Getty Images Arsenal vann ótrúlegan 5-1 sigur er liðið tók á móti Englandsmeisturum Manchester City í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Það tók heimamenn ekki nema 104 sekúndur að brjóta ísinn þegar Skytturnar nýttu sér klaufagang í vörn City og Martin Ødegaard skilaði boltanum í netið. Bæði lið fengu tækifæri til að bæta mörkum við í fyrri hálfleik, en inn vildi boltinn ekki og staðan í hálfleik því 1-0. Englandsmeistararnir voru með lífsmarki í upphafi síðari hálfleiks og Erling Braut Haaland jafnaði metin fyrir liðið á 55. mínútu. Gestirnir gátu þó ekki fagnað of lengi því Thomas Partey endurheimti forystu heimamanna rétt um mínútu síðar, með skot sem hafði viðkomu í varnarmanni. AN IMMEDIATE REPLY!Partey's effort from distance deflects in off Stones as we re-take the lead ✊🔴 2-1 🔵 (56) pic.twitter.com/5yNCPEXKL8— Arsenal (@Arsenal) February 2, 2025 Meistararnir virtust rotaðir eftir þetta og heimamenn gengu á lagið. Myles Lewis-Skelly skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni á 62. mínútu og á þeirri 76. bætti Kai Havertz fjórða marki liðsins við. Það var svo varamaðurinn Ethan Nwaneri sem rak síðasta naglann í kistu City-manna með marki á þriðju mínútu uppbótartíma og þar við sat. Arsenal situr í öðru sæti deildarinnar með 50 stig eftir 24 leiki, sex stigum á eftir toppliði Liverpool, sem þó á leik til góða. Englandsmeistarar Manchester City sitja hins vegar í fjórða sæti með 41 stig og ljóst að titilvörn þeirra er að verða að engu. Enski boltinn